Ísobel
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 1 ber nafnið
Isabella er upphaflega spænsk mynd af nafninu Elísabet. Síðari liðurinn var lagaður að lýsingarorðinu „bella“ sem merkir „fögur“. Frá Spáni barst nafnið til Frakklands og þaðan til Bretlandseyja. Nafnið var notað í mörgum konungafjölskyldum og er það líklegasta skýringin á vinsældum þess erlendis.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
ÍsabelNafn þetta er ýmist talið vera spænsk mynd af nafninu Elísabet eða þá að það sé dregið af forn semísku nafni og merki dóttir guðsins Baal.ÍsoldNafnið er erlent að uppruna og sótt í söguna um Tristan og Ísold, sem þekkt er af frönsku kvæði Tómasar frá Bretagne frá 12. öld. Tristan var einn af riddurum Arthúrs konungs og felldu þau Ísold hugi saman. Í íslenskri þýðingu frá 1226 var stúlkan nefnd „Ísönd“. Nafnið hefur lítið verið notað á Norðurlöndum en dálítið á Englandi, og í Þýskalandi jukust vinsældir þess eftir að Richard Wagner samdi óperuna „Tristan og Isolde“ árið 1865. Sigurður Breiðfjörð orti rímu um Tristan og Ísold, og tvær endurminningabækur Kristmanns Guðmundssonar nefndust „Ísold hin svarta“ og „Ísold hin gullna“.IsabelIsabella er upphaflega spænsk mynd af nafninu Elísabet. Síðari liðurinn var lagaður að lýsingarorðinu „bella“ sem merkir „fögur“. Frá Spáni barst nafnið til Frakklands og þaðan til Bretlandseyja. Nafnið var notað í mörgum konungafjölskyldum og er það líklegasta skýringin á vinsældum þess erlendis.ÍsafoldNafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "fold" sem merkir jörð. Ísafold var notað af rómantískum skáldum sem annað heiti á Íslandi.ÍsalindNafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og viðliðnum „-lind“.ÍssólNafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og viðliðnum „sól“, sbr. nafnið „Sól“.ÍsliljaNafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og nafnorðinu „lilja“.ÍsólUppruni nafnsins er óviss. Ef til vill er um sama nafn að ræða og „Íssól“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →