Greinar

Íslensk kvenmannsnöfn

Kvenmannsnöfn og stelpunöfn eru eiginnöfn sem gefin eru stúlkum og konum á Íslandi. Hér eru vinsælustu kvenmannsnöfnin ásamt merkingu þeirra.

Við höfum skráð 2.576 samþykkt kvenmannsnöfn í gagnagrunninum.

Vinsælustu kvenmannsnöfnin

  • Anna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.

  • Guðrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4.338 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Kristín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3.331 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "christiana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.

  • Sigríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.3.072 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "ríður" sem merkir falleg, - umhygglusöm.

  • Margrét
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2.748 sem fyrsta nafn

    Nafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er sjálft tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku barst nafnið í latínu sem „Margarīta“ og þaðan í fornfrönsku sem „Marguerite“, en úr frönsku barst það síðan til enskumælandi landa. Það var einnig vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna þar og í evrópskum konungaættum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld.

  • Helga
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2.647 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af lýsingarorðinu "heilagur".

  • Sigrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2.423 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Ingibjörg
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.982 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.

  • María
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.917 sem fyrsta nafn

    Nafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.

  • Jóhanna
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.791 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og er leitt af hebreska orðinu "johanan" sem merkir Drottinn er náðugur.

  • Katrín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.622 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af gríska orðinu "katharós" sem merkir hreinn, - hin hreina.

  • Elín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.584 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er norræn mynd nafnsins Helena sem merkir hin bjarta.

  • Hildur
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.450 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja, - bardagi.

  • Eva
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.

  • Sara
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.

  • Lilja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.369 sem fyrsta nafn

    Jurtaheitið lilja.

  • Elísabet
    StúlkaSamþykkt4 atkv.1.276 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.

  • Ragnheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.233 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Ásta
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.201 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er talið geta bæði verið stytting á nöfnum sem byrja á Ást- og hinsvegar leitt beint af orðinu ást.

  • Guðbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.132 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.

  • Erla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.126 sem fyrsta nafn

    Fuglsheitið erla, - stytting á maríuerla.

  • Auður
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.116 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu en þekktasti nafnberi til forna var „Auður djúpúðga“. „Auður“ er sama orð og nafnorðið „auður“ sem merkir „ríkidæmi, auðæfi“.

  • Íris
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.088 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði þar sem Íris var upphaflega persónugerving regnbogans en varð síðar sendiboði guðanna.

  • Steinunn
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.080 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.

  • Kolbrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.070 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Kol" sem merkir dökkt yfirbragð og nafnorðinu "brún" sem merkir augnbrún.

  • Guðný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.069 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.

  • Bryndís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.050 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir brynja, - varin og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Kannski er því vakað yfir Bryndísi eða hún vakir yfir og ver aðra.

  • Berglind
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.045 sem fyrsta nafn

    Fremur ungt nafn hér á landi sem talið er dregið af nafni flugkappans Charles Lindbergh, sem fyrstum tókst að fljúga yfir Atlantshafið frá New York til Parísar árið 1927. Nafnið er sett saman af forliðnum „Berg“ og viðliðnum „lind“ sem merkir uppspretta.

  • Ólöf
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.043 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er lagað eftir karlmannsnafninu Ólafur.

  • Inga
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.030 sem fyrsta nafn

    Nafnið er talið fengið að láni úr austurnorrænum málum og barst þaðan til Noregs um 1200 og síðar til ensku- og þýskumælandi landa. Uppruni þess er óviss en „Inga“ er einnig gælumynd nafna sem hefjast á „Ing-“ eða „Ingi-“.

Um íslensk kvenmannsnöfn

Mörg íslensk kvenmannsnöfn koma úr náttúrunni og norrænni goðafræði; önnur bárust hingað með kristinni trú. Nafnið þarf að vera á mannanafnaskrá eða samþykkt af mannanafnanefnd til að hægt sé að gefa það. Á Veldu nafn geturðu skoðað merkingu, algengi og stöðu hvers nafns.

Íslensk karlmannsnöfn

Skoðaðu vinsælustu drengjanöfnin og karlmannsnöfnin á Íslandi.

Algengar spurningar um kvenmannsnöfn

Hvaða stelpunöfn eru vinsæl á Íslandi?

Vinsælustu stelpunöfnin breytast ár frá ári. Á Veldu nafn sérðu nýjustu tölur eftir skráðum einstaklingum, t.d. á greininni um vinsælustu nöfnin 2025.

Hvað eru íslensk kvenmannsnöfn?

Íslensk kvenmannsnöfn (stelpunöfn) eru eiginnöfn sem gefin eru stúlkum og konum. Þau koma oft úr norrænum, kristnum eða íslenskum hefðum. Á Veldu nafn finnur þú merkingu, tíðni og stöðu hvers nafns.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →