Greinar

Íslensk karlmannsnöfn

Karlmannsnöfn og drengjanöfn eru eiginnöfn sem gefin eru strákum og körlum á Íslandi. Hér eru vinsælustu karlmannsnöfnin ásamt merkingu þeirra.

Við höfum skráð 2.303 samþykkt karlmannsnöfn í gagnagrunninum.

Vinsælustu karlmannsnöfnin

  • Jón
    DrengurSamþykkt1 atkv.4.891 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Sigurður
    DrengurSamþykkt3 atkv.3.934 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af fornháþýska nafninu "Sigwart" sem er myndað af forliðnum "Sig" sem merkir sigur og viðliðnum "wart" sem merkir vörður, verndari.

  • Guðmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.3.699 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.

  • Gunnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.3.004 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Ólafur
    DrengurSamþykkt3 atkv.2.616 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er víxlmynd við fornnorræna nafnið "Áleifur" sem er samsett af forliðnum "Anu" sem merkir forfaðir og viðliðnum "laibar" sem merkir afkomandi, - erfingi.

  • Einar
    DrengurSamþykkt2 atkv.2.328 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji.

  • Kristján
    DrengurSamþykkt2 atkv.2.250 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Christiánus" sem merkir kristinn maður.

  • Magnús
    DrengurSamþykkt2 atkv.2.225 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "magnus" sem merkir mikill.

  • Stefán
    DrengurSamþykkt2 atkv.2.128 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af gríska orðinu "stéphanos" sem merkir kóróna.

  • Jóhann
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.996 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Arnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.741 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"

  • Björn
    DrengurSamþykkt1 atkv.1.675 sem fyrsta nafn

    Bjarndýr

  • Árni
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.500 sem fyrsta nafn

    Eldri mynd nafnsins er „Arni“, skylt nöfnunum „Örn“ og „Ari“. Talið er að nafnið hafi ef til vill borist inn í íslensku úr fornnorrænu sem stytting á nöfnum með forliðnum „Arn-“. Nafnið er kunnugt hérlendis allt frá landnámsöld.

  • Aron
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn

    Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.

  • Bjarni
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.450 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er veik beygingarmynd af nafninu Björn

  • Daníel
    DrengurSamþykkt3 atkv.1.429 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er ættað úr hebresku og þýðir Guð er minn dómari.

  • Helgi
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.410 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "helgur".

  • Halldór
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.365 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Hall" sem merkir steinn og viðliðnum "dór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.

  • Pétur
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.338 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni, er komið af gríska nafninu "Pétros" sem merkir klettur. (Sjá Jóhannesarguðspjall 1:42)

  • Kristinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.250 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af nafnorðinu "kristinn" sem merkir sá sem trúir á Jesú Krist.

  • Alexander
    DrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.

  • Ragnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.239 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Gísli
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.163 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir herfangi, - gísl. Í grein eftir Sigurð Nordal eru vangaveltur um að ekki sé skýrt eftir herfangi. Frekar að við þær aðstæður þegar stríðandi aðilar þurftu að semja um frið, þá voru fengnir gíslar sem gengu yfir á meðan á viðræðum stóð. Ef ekki náði saman voru gíslarnir drepnir. Þótti heiður af því að vera gísl.

  • Þorsteinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.121 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "steinn" sem merkir harður, - steinn.

  • Auður
    DrengurSamþykkt29. nóv 20132 atkv.1.116 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu en þekktasti nafnberi til forna var „Auður djúpúðga“. „Auður“ er sama orð og nafnorðið „auður“ sem merkir „ríkidæmi, auðæfi“.

  • Viktor
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.

  • Guðjón
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.085 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur. Sumir telja það vera komið af hebreska nafninu "Gideon" sem merkir sá sem mer/særir sári eða brýtur, sá sem eyðir.

  • Andri
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.073 sem fyrsta nafn

    Norrænt nafn er merkir skíði.

  • Óskar
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.051 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur af írska nafninu "Oscara" sem samsett er af forliðnum "Os" sem merkir hjörtur og viðliðnum "cara" sem merkir vinur.

  • Bjarki
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.028 sem fyrsta nafn

    Bjarki er þekkt sem viðurnefni kappans „Böðvars bjarka“ í Hrólfs sögu kraka og bar einnig maður að nafni „Þórður bjarki“ á 14. öld. Nafnið er upphaflega norrænt viðurnefni, líklega leitt af forngermönsku „*Berikan“, sbr. fornháþýsku „Bericho“ í merkingunni „litli björninn“, skylt nöfnunum Björn og Bera. Það getur einnig hafa verið leitt af trjáheitinu „björk“ eða „birki“.

Um íslensk karlmannsnöfn

Stór hluti íslenskra karlmannsnafna er norrænn að uppruna og mörg hafa verið í notkun frá landnámi. Nafnið þarf að vera á mannanafnaskrá eða samþykkt af mannanafnanefnd til að hægt sé að gefa það. Á Veldu nafn geturðu skoðað merkingu, algengi og stöðu hvers nafns.

Íslensk kvenmannsnöfn

Skoðaðu vinsælustu stelpunöfnin og kvenmannsnöfnin á Íslandi.

Algengar spurningar um karlmannsnöfn

Hvaða stráka nöfn eru algeng á Íslandi?

Algeng stráka nöfn á Íslandi eru oft norræn eða hefðbundin karlmannsnöfn. Á Veldu nafn geturðu síað aðeins karlmannsnöfn, raðað eftir fjölda og skoðað hvert nafn með merkingu og tíðni.

Hvað eru íslensk karlmannsnöfn?

Íslensk karlmannsnöfn (drengjanöfn) eru eiginnöfn sem gefin eru strákum og körlum. Margar beygingarmyndir eru séríslenskar. Á Veldu nafn sérðu algengi, merkingu og hvort nafn sé samþykkt í mannanafnaskrá.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →