Garðar
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 664 bera nafnið
Nafnið er leitt af nafnorðinu „garður“ sem merkir „veggur, girðing; umgirt svæði“ og viðskeytinu „-ar“. Það kemur fyrir í Landnámu en þar segir frá Garðari Svavarssyni hinum sænska sem fann Ísland, og var landið um tíma nefnt Garðarshólmi eftir honum. Eiginnafnið sjálft virðist þó ekki hafa verið notað fyrr en seint á 19. öld. Í Svíþjóð hefur nafnið verið notað frá upphafi 20. aldar, en fornsænsk mynd þess er „Gärdhar“, og í Noregi kemur það fyrir á miðöldum en var tekið upp aftur um 1900.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
490
Fyrsta nafn
184
Annað nafn
674
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
GarpurDuglegur maður, - hetja.GunnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.GerðarNafnið er líklega myndað af kvenmannsnafninu „Gerður“ með viðskeytinu „-ar“.GrétarNafn þetta er dregið af kvennafninu Gréta sem er stytting á nafninu Margrét og merkir perla.GauturNafn þetta merkir maður frá Gautlandi í Svíþjóð.GaukurFuglsheitið gaukur.GarriAð baki nafninu liggur að líkindum nafnorðið „garri“ sem merkir rosti eða kaldur vindur.GuðmarNafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "mar" sem merkir víðfrægur.