Sörli

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 14 bera nafnið

Sonur Guðrúnar Gjúkadóttur hét Sörli samkvæmt fornum kvæðum og nafnið kemur einnig fyrir í Landnámu, Íslendinga sögum og Sturlungu. Það samsvarar fornháþýsku og fornsaxnesku „Sarulo“, „Sarilo“, „Serilo“, sbr. gotnesku „Sarus“ og fornensku „Serlo“, og virðist tengt orðinu „sörvi“ „hálsband, men“ og gotnesku „sarwa“ „vopnabúnaður, hlífar (í orrustu)“. Nafnið virðist því upphaflega merkja „herklæddur maður, vígbúinn“, sbr. „serlar“ „hermenn“ og „Sörvi“ „sækonungsheiti“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.