Sófía

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 2 bera nafnið

Nafnið er grískt að uppruna, leitt af nafnorðinu „sophia“ sem merkir „viska“. Talið er að eiginnafnið hafi orðið til fyrir misskilning þar sem „hagia sophia“ var túlkað sem „heilög Soffía“ í stað „heilög viska“, en heilög Soffía dó píslarvættisdauða um árið 120. Hún var móðir Fídesar, Spesar og Karitasar. Nafnmyndin „Sophia“ varð vinsæl á Bretlandseyjum á 17. og 18. öld, meðal annars vegna persónunnar Sophiu Weston í skáldsögunni „Tom Jones“ eftir Henry Fielding frá 1749. Nafnið var einnig algengt í konungaættum Evrópu, sem ýtti undir útbreiðslu þess.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn