Rólant

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 4 bera nafnið

Nafnið er upphaflega þýskt, sbr. fornháþýsku „Hrodland“, „Hruotland“, „Rodland“ og „Roland“, í miðlágþýsku „Rolandus“, sett saman af fornháþýska nafnorðinu „hroth“ „frægð, hróður“ og „lant“, „land“ „land“ eða lýsingarorðinu „nantha“ „hughraustur, djarfur“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 14. öld, nú í myndinni „Roland“, og hefur verið notað á Englandi og í Þýskalandi. Vinsældir sínar á nafnið að þakka hetjukvæðinu „Chanson de Roland“ sem sækir efni til Karlamagnúss sögu og frásagnarinnar af Rúnzivalsbardaga. Roland var systursonur Karlamagnúsar keisara. Út af þessu efni voru ortar „Rollantsrímur“ á 16. öld og aðrar á 17. og 18. öld. Til Bretlandseyja barst nafnið með Normönnum á 11. öld. Ítölsk mynd nafnsins er „Orlando“ en frönsk „Roland“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

3

Fyrsta nafn

1

Annað nafn

4

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.