Rikharður
Nafnið er sennilega þýskt að uppruna, sbr. fornháþýsku „Ricohard“, „Richart“, nútímaþýsku „Richard“, sem sett er saman af lýsingarorðunum „rihhi“ sem merkir voldugur, ríkur, í íslensku „ríkur“, og „harti“ sem merkir harður, sterkur, í íslensku „harður“. Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi og til Englands með Normönnum á 11. öld, en þar var það m.a. borið af þremur konungum, þekktastur þeirra er sennilega Ríkharður I., oft nefndur „Ríkharður ljónshjarta“, sem ríkti á 12. öld. Vinsældir nafnsins jukust verulega við útkomu bókarinnar Ivanhoe eftir Sir Walter Scott árið 1820, sem segir einmitt frá Ríkharði ljónshjarta. Nafnið Ríkharður kemur einnig fyrir í Heimskringlu sem heiti á Rúðujarli og enskum presti.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →