Mekkin
Uppruni nafnsins er óviss. Sú saga fylgir því að ein af þeim konum sem leystar voru úr ánauð frá Alsír eftir Tyrkjaránið hafi látið stúlkubarn heita þessu nafni eftir húsmóður sinni í Alsír og að nafnið sé tengt borgarheitinu Mekka. Önnur skýring er sú að nafnið sé germanskt og hingað komið frá Norður-Þýskalandi. Stuttnefnið „Mecke“ er upprunalega frísneskt og notað um þær konur sem heita nafni er hefst á „Mein-“. Forliðurinn „Mein-“ var á eldra stigi „Megin-“ af fornháþýska orðinu „magan“, „megin“ sem merkir kraftur, afl, samsvarandi íslensku orðunum „magn“ og „megin“ í sömu merkingu, sbr. nöfnin Magnhildur og Matthildur.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
2
Fyrsta nafn
8
Annað nafn
10
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: