Magnhildur

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 18 bera nafnið

Nafnið er myndað af forliðnum „Magn-“ og síðari liðnum „-hildur“ sem merkir „orrusta“. Það hefur verið tengt fornháþýska kvenmannsheitinu „Maginhild“/„Mahthilt“ þar sem fyrri liður er „maht“ - máttur, afl - og síðari liður „hilt“ - orrusta. Úr því nafni varð síðar „Mathilda“/„Matthildur“ og ekki er ólíklegt að norræna nafnið „Magnhildur“ hafi verið myndað eftir því þýska. Nafnið „Magnhild“ þekkist í Danmörku og Noregi frá 13. öld en lengur í Svíþjóð.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.