Lúcía
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 11 bera nafnið
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "lux" sem merkir ljós.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
6
Fyrsta nafn
5
Annað nafn
11
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
LúsíaNafnið er rómverskt að uppruna og talið leitt af karlmannsnafninu „Lūcius“, sem á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „lūx“ er merkir ljós. „Lucy“ er ensk mynd nafnsins. Heilög Lúsía frá Sýrakúsu, sem dó píslarvættisdauða árið 304, var mjög vinsæll dýrlingur á miðöldum og var m.a. ort um hana í „Heilagra meyja drápu“ á 14. öld. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í ensku- og þýskumælandi löndum, Ítalíu, Spáni og víðar, og „Lúcíumessa“ er haldin 13. desember.LucíaLucía er kvenkynsmynd af latneska nafninu Lucius, dregið af orðinu „lux“ sem merkir „ljós“.LúísaNafnið er upprunalega franskt, „Louise“, myndað af karlmannsnafninu „Louis“ (sbr. „Lúðvík“). Það fylgdi evrópsku konungaættunum sem án efa hefur aukið vinsældir þess. Nafnmyndin „Lovísa“ er notuð á Norðurlöndum og hefur borist þaðan til ensku- og þýskumælandi landa.LydíaSama/svipað og Lýdía.LúvísaSama/svipað og Lovísa.LýdíaNafn þetta er komið úr biblíunni, er grískt að uppruna og er talið merkja kona frá Lýdíu.MaríaNafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.LovísaNafn þetta er upprunalega komið af franska nafninu "Louise".
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →