Lambi

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði

Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Íslendingasögum, t.d. Njálu, þar sem nefndir eru þrír menn með nafninu: Lambi Sighvatsson, Lambi Sigurðarson og Lambi Sigfússon. Það er upphaflega gælunafn, oft notað um þann sem er hrokkinhærður, og að baki því liggur nafnorðið „lamb“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

Fjöldi með nafn

0

Fyrsta nafn

0

Annað nafn

0

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

Engin tímaraðargögn fundust fyrir þetta nafn.

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

LambertNafnið er þýskt, sbr. „Lambrecht“, úr fornháþýsku „Landbreht“, „Lamprecht“, samsett af forliðnum „Lam-“ af „lant“ „land“ og viðliðnum „-bert“ af fornháþýska lýsingarorðinu „beraht“ „bjartur, skínandi“. Í íslensku fornbréfi frá 15. öld er maður nefndur „Gottskálk Landbriktsson“ og er þar um sama nafn að ræða. Nafnið kemur fyrst fyrir í Danmörku á 10. öld og í Svíþjóð er það þekkt frá 13. öld, einnig í Þýskalandi og á Englandi. „Lambertsmessa“ er 17. september, kennd við biskupinn og píslarvottinn „Lambertus“ af Maastricht í Hollandi sem dó píslarvættisdauða árið 708.LaugiNafnið er stuttnefni karla sem bera nafn með viðliðinn „-laugur“.LakiMerking nafnsins er ekki fullljós. „Laki“ er meðal annars heiti á móbergsfjalli en er einnig notað um sérstakt meltingarhólf í jórturdýrum og tiltekinn vatnafisk.BambiBambi er þekktast sem nafn á dádýrskálfi í teiknimyndasögu.LogiNafn þetta er fengið af nafnorðinu "logi" sem merkir eldur.LaufarUngt nafn í íslensku en uppruni þess er óviss. Nafnið er hugsanlega myndað af kvenmannsnafninu „Laufey“ með viðskeytinu „-ar“.LokiLoki var einn af ásum samkvæmt Snorra-Eddu. Uppruni nafnsins er óviss. Sumir tengja hann við sögnina „lúka“ í merkingunni „gera enda á, ljúka við“. Aðrir vilja tengja nafnið við „log“ og „logi“ og telja að Loki hafi upphaflega verið eldvættur.LindiLíklega er um gælunafn að ræða sem dregið er af nöfnum sem enda á „-lindur“.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.