Lambert
Nafnið er þýskt, sbr. „Lambrecht“, úr fornháþýsku „Landbreht“, „Lamprecht“, samsett af forliðnum „Lam-“ af „lant“ „land“ og viðliðnum „-bert“ af fornháþýska lýsingarorðinu „beraht“ „bjartur, skínandi“. Í íslensku fornbréfi frá 15. öld er maður nefndur „Gottskálk Landbriktsson“ og er þar um sama nafn að ræða. Nafnið kemur fyrst fyrir í Danmörku á 10. öld og í Svíþjóð er það þekkt frá 13. öld, einnig í Þýskalandi og á Englandi. „Lambertsmessa“ er 17. september, kennd við biskupinn og píslarvottinn „Lambertus“ af Maastricht í Hollandi sem dó píslarvættisdauða árið 708.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: