Kamilus

Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 1 ber nafnið

Nafnið er ritmynd af „Kamillus“, sem notað var í Danmörku á 19. öld og í Þýskalandi sem „Camillo“ eða „Camillus“, komið úr ítölsku og latínu „camillus“ sem merkir „eðalborinn drengur sem aðstoðar við fórnarathafnir“. Trúlega er nafnið upphaflega tökunafn hér úr dönsku eða þýsku en gæti einnig í einhverjum tilvikum verið dregið af kvenmannsnafninu „Camilla“/„Kamilla“, með latneska viðskeytinu „-us“. Nafnið er vel þekkt á Spáni og Ítalíu, ýmist skrifað „Camilo“, „Camillo“ eða „Camilus“, og sækir vinsældir sínar til heilags Camilusar frá Lellis á Ítalíu, rómversk-kaþólsks prests sem stofnaði sérstaka reglu er sinnti veiku fólki.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

Fjöldi með nafn

0

Fyrsta nafn

1

Annað nafn

1

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20182026

Gögn: Þjóðskrá

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.