Eufemía
Nafnið er sett saman af grísku orðunum „eu“ sem merkir góður og sögninni „phenai“ sem merkir tala. Það þekkist víða í Evrópu, m.a. í Danmörku frá því um 1300 og einnig í Svíþjóð og Noregi. Heilög Evfemía var uppi á 3. öld og dó píslarvættisdauða árið 307, en fleiri heilagar konur báru þetta nafn, m.a. Evfemía abbadís í Altomünster á 12. öld. Nafnsins er einnig getið í Heilagra meyja drápu frá 14. öld þar sem sagt er frá Evfemíu sem ekki vildi hneigja sig fyrir goðunum. Þá hét Evfemía einnig drottning Lúdóvíkusar konungs í Saxlandi samkvæmt Sigurðar sögu þögla.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
3
Annað nafn
4
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →