Efemía
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 26 bera nafnið
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman af forliðnum "Eu" sem merkir góður og sögninni "phénai" sem merkir að tala
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
18
Fyrsta nafn
8
Annað nafn
26
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
EmilíaNafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.EmelíaSama/svipað og Emilía.EvelíaNafnið er spænskt að uppruna og merkir „geislandi, skínandi“.EvlalíaNafn þetta er talið vera síðgrískt eiginnafn, sett saman af "eu" sem merkir góður og sögninni "lalein" sem merkir tala, masa. Því má segja að nafnið merki "sá sem talar vel".EufemíaNafnið er sett saman af grísku orðunum „eu“ sem merkir góður og sögninni „phenai“ sem merkir tala. Það þekkist víða í Evrópu, m.a. í Danmörku frá því um 1300 og einnig í Svíþjóð og Noregi. Heilög Evfemía var uppi á 3. öld og dó píslarvættisdauða árið 307, en fleiri heilagar konur báru þetta nafn, m.a. Evfemía abbadís í Altomünster á 12. öld. Nafnsins er einnig getið í Heilagra meyja drápu frá 14. öld þar sem sagt er frá Evfemíu sem ekki vildi hneigja sig fyrir goðunum. Þá hét Evfemía einnig drottning Lúdóvíkusar konungs í Saxlandi samkvæmt Sigurðar sögu þögla.EvgeníaNafnið er leitt af karlmannsnafninu „Evgeníus“. Það þekkist í Svíþjóð frá síðari hluta 18. aldar, en rithátturinn „Eugénie“ er heldur yngri. Nafnið hefur einnig verið notað í Noregi og Danmörku og er vel þekkt í ensku- og þýskumælandi löndum, á Ítalíu og Spáni.ElíanaNafnið er af frönskum rótum, en franska myndin er „Éliane“. Það er aftur komið úr latínu „Aeliana“, sem er kvenkynsmynd af rómverska fjölskyldunafninu „Aeliānus“ og er talið leitt af gríska orðinu „hēlios“ sem merkir sól. Nafnið þekkist einnig í Noregi og er þar talið afleiðsla af nöfnum sem hefjast á „El-“.EileiþíaNafnið er latnesk ummyndun á gríska nafninu „Ilithyia“ en hún var grísk gyðja sem heitið var á við barnsfæðingar.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →