Raða eftir
Universe er af enska orðinu universe „alheimur“, komið af latínu universum „hið heila, allt sem er“.
Ullur var guð í norrænni goðafræði, sonur Sifjar og stjúpsonur Þórs. Leiddar hafa verið að því líkur að orðstofninn „*wulþu-“, sem merkir „frægð“, liggi að baki nafninu. Ritmyndin „Ullr“ er forn ritháttur áður en -u- var skotið inn í lokaatkvæði.
„Ullur“ var guð í norrænni goðafræði, sonur Sifjar og stjúpsonur Þórs. Leiddar hafa verið að því líkur að orðstofninn „*wulþu-“, sem merkir „frægð“, liggi að baki nafninu. Ritmyndin „Ullr“ er forn ritháttur áður en -u- var skotið inn í lokaatkvæði.
Nafnið er dregið af „Till Eulenspiegel“ („Eule“ = ugla, „Spiegel“ = spegill), þýskum flakkara og hrekkjalómi sem uppi var á fyrri hluta 14. aldar og sagnir um hann hafa lifað allt fram á þennan dag.
Nafnið er sama orð og dýrsheitið „úlfur“. Það kemur fyrir í Landnámu og víða í fornsögum og fornbréfum, og þekktist á öllum Norðurlöndum á miðöldum. Dönsk og sænsk mynd er „Ulf“, norsk „Ulv“, og það hefur einnig verið tekið upp á Englandi og í Þýskalandi sem hliðarmynd við „Wolf“.
Nafnið er fremur ungt í íslensku og er trúlega myndað af kvenmannsnafninu „Urður“ með viðskeytinu „-ar“.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-þór“, sem vísar til Þórs úr goðafræðinni. Þess eru einnig dæmi að kvenmannsnafnið „Þórunn“ liggi að baki nafngjöfinni.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-steinn“. Einnig eru þess dæmi að kvenmannsnafnið „Steinunn“ liggi að baki nafngjöfinni.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Unnur" sem merkir hinn elskaði og viðliðnum "dór" í merkingunni Þór þrumuguð úr goðafræðinni.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Unnur" sem merkir hinn elskaði og viðliðnum "björn" í merkingunni bjarndýr.
Skiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um.
Nafn þetta er skylt sögninni "una" sem merkir að dvelja, - kunna vel við sig.
Nafnið er upphaflega þýskt, komið úr fornháþýsku „Uodalrich“, „Udalric“, „Odalric“ sem er samsett af orðliðunum „uodal“ er merkir erfðafé, óðal og lýsingarorðinu „rihhi“ er merkir ríkur, voldugur. Það var í miðlágþýsku „Ulric“, „Olric“ og barst þaðan til Danmerkur. Nafnið hefur þekkst í Danmörku frá því á 13. öld en er 15. aldar nafn í Svíþjóð, og í Noregi eru heimildir um það frá 17. öld. Nafnið tíðkast á Englandi og í Þýskalandi sem „Ulrich“.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →