Zophia
Stúlkunafn· 3 atkvæði
Zophia er mynd af nafninu Soffía (Sophia), dregin af gríska orðinu sophia sem merkir „viska, speki“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
ZophíaNafnið er grískt að uppruna, leitt af nafnorðinu „sophia“ sem merkir „viska“. Talið er að eiginnafnið hafi orðið til fyrir misskilning þar sem „hagia sophia“ var túlkað sem „heilög Soffía“ í stað „heilög viska“, en heilög Soffía dó píslarvættisdauða um árið 120. Hún var móðir Fídesar, Spesar og Karitasar. Nafnmyndin „Sophia“ varð vinsæl á Bretlandseyjum á 17. og 18. öld, meðal annars vegna persónunnar Sophiu Weston í skáldsögunni „Tom Jones“ eftir Henry Fielding frá 1749. Nafnið var einnig algengt í konungaættum Evrópu, sem ýtti undir útbreiðslu þess.SophiaNafnið er grískt að uppruna, leitt af nafnorðinu „sophia“ sem merkir „viska“. Talið er að eiginnafnið hafi orðið til fyrir misskilning þar sem „hagia sophia“ var túlkað sem „heilög Soffía“ í stað „heilög viska“, en heilög Soffía dó píslarvættisdauða um árið 120. Hún var móðir Fídesar, Spesar og Karitasar. Nafnmyndin „Sophia“ varð vinsæl á Bretlandseyjum á 17. og 18. öld, meðal annars vegna persónunnar Sophiu Weston í skáldsögunni „Tom Jones“ eftir Henry Fielding frá 1749. Nafnið var einnig algengt í konungaættum Evrópu, sem ýtti undir útbreiðslu þess.MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.JuliaJulia er hliðarmynd nafnsins Júlía og er myndað eftir karlmannsheitinu „Júlíus“ með viðskeytinu „-a“. Nafnið er vel þekkt á öllum Norðurlöndum, í enskumælandi og þýskumælandi löndum og víðar.ZulimaNafnið er hebreskt að uppruna og ef til vill sama nafn og „Zulema“ sem merkir „friður“.NadiaNafnið er upphaflega rússneskt, „Nadya“, en það er gælumynd nafnsins „Nadezhda“ sem merkir „von“.SofiaSama/svipað og Soffía.SylviaSama/svipað og Sylvía.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →