Octavia
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 2 bera nafnið
Nafnið kemur fyrir í Mágus sögu jarls sem nafn á dóttur Roðulgeirs jarls og drottningu Vilhjálms Laissonar, undir myndinni „Oktavía“. Það er upphaflega myndað af latneska karlmannsnafninu „Octāvius“, af töluorðinu „octāvus“ sem merkir „áttundi“. Á Viktoríutímanum var ekki óalgengt að áttunda barn, væri það sonur, væri látið heita „Octavius“. Nafnið er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
5
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
5
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
OliviaNafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.OktavíaOktóvíaNafn þetta er að öllum líkindum kvenmynd karlmannsnafnsins Októ.CeciliaNafnið er upphaflega latneskt, „Caecilia“, myndað af rómverska ættarnafninu „Caecilius“. Að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ sem merkir „blindur“. Heilög Cecilia dó píslarvættisdauða í Róm á 3. öld og er talin verndari tónlistar, einkum kirkjutónlistar, og er meðal vinsælustu dýrlinga kaþólskra. Elsta íslenska mynd nafnsins var „Cecilía“ og Sesselja Guðmundsdóttir er nefnd í Sturlungu, kona Bárðar Þorkelssonar á Söndum.VictoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.AmeliaAmelia er upprunnið af germanska nafnliðnum „amal“ sem merkir „ötull, hraustur“, og er skylt nafninu Amalía. Því er stundum ruglað saman við Emilíu, sem er af öðrum rótum.PatriciaNafnið er erlent og leitt af karlmannsnafninu „Patrick“, sem er sömu ættar og „Patrekur“.ViktoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.