Niðbjörg
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði
Fyrri liður nafnsins er sennilega „niður“ sem merkir ættingi, en síðari liðurinn er viðliðurinn „-björg“. Nafnið kemur fyrir í fornsögum en „Niðbjörg Bjólansdóttir“ er nefnd í Landnámu og „Niðbjörg Kaðlínardóttir“ í Laxdælu.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
NýbjörgNafn þetta er sett saman af forliðnum "ný" sem merkir ung,- ný og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.GuðbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.ÞorbjörgNafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.ArnbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga. Arnbjörg er því stoð og stytta heimilisins.AuðbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Auð" sem merkir hamingja, - lukka og viðliðnum "björg" sem merkir vernd. Auðbjörg er því heppin og það er vakað yfir henni.SalbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Sal" sem fenginn er af nafnorðinu "salur" og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.SólbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Sól" sem fenginn er af nafnorðinu "sól" og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.ValbjörgNafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp. Valbjörg er því valkyrja, - sú sem hjálpar hinum föllnu.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →