Morgunsól
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 1 ber nafnið
Nafnið er sett saman af nafnorðunum „morgunn“ og „sól“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MarísólNafnið er spænskt að uppruna, sett saman af „Maria“ og „Sol“. Síðari liðurinn er spænska orðið „sol“ sem samsvarar íslenska orðinu „sól“.MaísólNafnið er sett saman af mánaðarheitinu „maí“ og nafnorðinu „sól“.MonikaSama/svipað og Mónika.MarsibilUppruni nafnsins er óviss en elstu heimildir benda til að það sé erlent. Hugsanleg eru tengsl við latneska nafnið „Marcella“, sem myndað er af karlmannsnafninu „Marcellus“ (smækkunarheiti af „Marcus“), en það nafn þekkist víða, m.a. sem „Mairsile“ á Írlandi og „Marsaili“ í Skotlandi. Nafnið gæti einnig hafa blandast nafninu „Sibilla“, sem var völva þekkt úr grískri goðafræði. Endingin „-bil“ þekkist úr öðrum fornum nöfnum, t.d. „Blensinbil“, nafni móður riddarans Tristrams. Nafnið kemur fyrir í fornaldarsögum, m.a. sem nafn dætra konunga í Sörla sögu sterka, Hjálmþés sögu og Ölvis og Hálfdanar sögu Brönufóstra.MarzibilUppruni nafnsins er óviss en elstu heimildir benda til að það sé erlent að uppruna. Hugsanleg eru tengsl við latneska nafnið „Marcella“ sem myndað er eftir karlmannsnafninu „Marcellus“, en sú nafnmynd er smækkunarheiti af „Marcus“. „Marcèlla“ er algengt nafn á Ítalíu, „Mairsile“ er notað á Írlandi en „Marsaili“ í Skotlandi. Nafnið gæti hafa blandast nafninu „Sibilla“, en svo hét völva þekkt úr grískri goðafræði. Endingin „-bil“ er þekkt úr öðrum nöfnum til forna, t.d. hét móðir riddarans Tristrams „Blensinbil“. „Marsibilla Soldánsdóttir“ er nefnd í Jökuls þætti Búasonar og þrjár konur með þessu nafni koma einnig fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda: „Marsibil“ dóttir Hálfdanar Brönufóstra í Sörla sögu sterka, „Marsibil“ dóttir Margaríuss konungs af Sýríu í Hjálmþés sögu og Ölvis, og „Marsibil“ dóttir Ólafs Englakonungs í Hálfdanar sögu Brönufóstra.MatthildurNafn þetta er þýskt að uppruna og er sett saman af nafnorðinu "maht" sem merkir kraftur, - afl og nafnorðinu "hiltiu" sem merkir orrusta.MálfríðurNafn þetta er myndað af forliðnum "Mál" sem merkir tungumál og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.MatthildaNafnið er þýskt að uppruna, sett saman af fornháþýsku orðunum „maht“ sem merkir kraftur, afl - í íslensku „magn“, „megin“ í sömu merkingu - og „hiltiu“ sem merkir orrusta, í íslensku „hildur“. Í miðlágþýsku var nafnið „Magtilt“ en í fornháþýsku „Mahthildis“, „Mathilt“ og „Mathilda“. Af þessum nafnmyndum varð til þýska nafnið „Mat(h)ilde“ sem barst snemma til Norðurlanda. Vinsældir nafnsins í Þýskalandi fyrr á öldum má rekja til heilagrar Matthildar á 10. öld, konu Hinriks I., og því bregður einnig fyrir í evrópskum konungaættum. Í fornum bókmenntum má finna nafnið í Konráðs sögu en kona Konráðs keisara hét Matthildur.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →