Malía
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 7 bera nafnið
Nafnið er erlent að uppruna og mun vera hliðarmynd af „Mary“ komin frá Havaíeyjum.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
5
Fyrsta nafn
2
Annað nafn
7
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MalínaNafnið er erlent að uppruna og hliðarmynd af „Magdalena“. „Malin“ hefur verið notað í Svíþjóð frá 16. öld sem stytting á „Malena“, sem aftur er þekkt frá 12. öld sem stytting á „Magdalena“.MaríaNafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.MalikaNafnið er myndað af karlmannsnafninu „Malik“ sem er af arabískum uppruna og stytting á „Abd-el-Malik“, „eigandi, konungur“. Í arabísku merkir „Malika“ „drottning“. Nafnið getur einnig verið gælumynd af ungverska nafninu „Amanda“ eða lagað að búlgarska karlmannsnafninu „Malik“, sem aftur er stytting á nafni sem hefst á „Mal-“, „lítill“.MalínNafn þetta er hliðarmynd nafnsins Magdalena.MalenaNafn þetta er hliðarmynd nafnsins Magdalena.MaíaMaya er ritmynd af „Maja“, sem er algengt gælunafn, einkum kvenna sem heita „María“. Uppruni þess er sennilega erlendur, en „Maja“ hefur verið notað sem eiginnafn í Svíþjóð og Danmörku frá því á 14. öld.MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.MelíaNafnið er sagt komið úr grískri goðafræði í merkingunni „hunang“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →