Keli
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1 ber nafnið
Keli er algengt gælunafn manna sem bera nafn sem endar á „-kell“, eins og Áskell og Þorkell.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KáriNafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.KaliNafnið kemur fyrir í Landnámu og hefur trúlega verið notað sem viðurnefni í fyrstu. Það er sama orð og „kali“ sem merkir kuldagjóstur. Það var einnig notað í fornsænsku.KarliKarli hét þræll Ingólfs Arnarsonar og Karli á Karlastöðum er nefndur í Landnámu. Nafnið á vinsældir sínar í Evrópu að þakka Karli mikla eða Karlamagnúsi keisara í Þýskalandi (742–814), sem árið 800 lýsti sig heilagan keisara Rómaríkis, „Carolus magnus“. Nafnið er sama orð og „karl“ sem merkir karlmaður, gamall maður; frjáls maður, sbr. færeysku „kallur“, norsku „kar“, „kall“, sænsku og dönsku „karl“ og fornháþýsku „kar(a)l“ sem merkir karlmaður, eiginmaður, brúðgumi.KalliKalli er gælumynd af nafninu „Karl“.AtliAtli er breyting á germönsku orðunum "Atta" sem merkir faðir/pabbi og "la" sem merkir lítill. Orðið "Attala" gæti því útlagst sem litli faðir/pabbi. Önnur skoðun er sú að orð þetta sé komið úr norrænu og þá dregið af orðinu "atall" sem merkir grimmur/harður.KetillNafn þetta er fengið af nafnorðinu "ketill" sem merkir pottur, - skál. Þó er líklega átt við hjálm í þessu tilviki.KennyKenny er upphaflega skoskt gælunafn þeirra sem heita „Kenneth“.KeranNafnið þekkist í Noregi sem „Kjeran“ og „Kjerand“. Elsta mynd þess er „Hjarrandi“ sem var Óðinsheiti, en dæmi eru um eiginnafnið á Íslandi á 10. öld og í Noregi á 11. öld. Eftir 1300 var „Hjarrand(r)“ algengt nafn í Noregi og breyttist sú mynd síðan í „Kjeran(d)“ og sums staðar í „Tjerand“, „Tjærand“ og „Jarand“. Nafnið er hugsanlega skylt fornháþýska nafninu „Herrant“ og fornenska nafninu „Heorenda“, en fyrri liður er þá sama orð og „her“ og síðari liður „rönd“ í merkingunni „skjöldur“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →