Kató
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 28 bera nafnið
Nafnið er líklegast latneskt að uppruna, ef til vill af „catus“ sem merkir gáfaður, klókur. Rómverskur stjórnmálamaður hét Cato og var kallaður gamli til aðgreiningar frá Cato yngri (d. 147 f.Kr.). Hann var frægur fyrir að enda allar sínar ræður með orðunum: „Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Nafnið Cato var tekið upp í Danmörku á 19. öld, var nokkuð algengt í Noregi á síðustu áratugum 20. aldar og tíðkast einnig í Þýskalandi.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
3
Fyrsta nafn
25
Annað nafn
28
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KarelNafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu "Karl" sem merkir karlmaður.KaiNafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KarlNafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".KalebNafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.KarvelUppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega hið sama og írska nafnið „Cerbhall“. Það bar meðal annars Írakonungur sem nefndur var „Kjarvalur“ í Laxdælu og víðar. „Karvel“ kemur einnig fyrir sem nafn á konungi í Karlamagnúss sögu.OttóNafn þetta er upphaflega stytting á þýskum nöfnum sem byrjuðu á "Auð-" og merkir auður, - hamingja.KasperNafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →