Kappi
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1 ber nafnið
Að baki nafninu liggur nafnorðið „kappi“ sem merkir hetja, garpur, hraustmenni.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KarliKarli hét þræll Ingólfs Arnarsonar og Karli á Karlastöðum er nefndur í Landnámu. Nafnið á vinsældir sínar í Evrópu að þakka Karli mikla eða Karlamagnúsi keisara í Þýskalandi (742–814), sem árið 800 lýsti sig heilagan keisara Rómaríkis, „Carolus magnus“. Nafnið er sama orð og „karl“ sem merkir karlmaður, gamall maður; frjáls maður, sbr. færeysku „kallur“, norsku „kar“, „kall“, sænsku og dönsku „karl“ og fornháþýsku „kar(a)l“ sem merkir karlmaður, eiginmaður, brúðgumi.KaldiNafnið er leitt af lýsingarorðinu „kaldur“.KalliKalli er gælumynd af nafninu „Karl“.KaiNafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.KaliNafnið kemur fyrir í Landnámu og hefur trúlega verið notað sem viðurnefni í fyrstu. Það er sama orð og „kali“ sem merkir kuldagjóstur. Það var einnig notað í fornsænsku.KarelNafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu "Karl" sem merkir karlmaður.KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KalebNafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →