Haki

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 13 bera nafnið

Nafnið kemur fyrir sem þrælsnafn í Landnámu og báru tveir menn það í Íslendinga sögum, annar skoskur þræll en hinn tröll í Noregi. Í Heimskringlu er „Haki“ m.a. nafn á sækonungi. Jón Espólín og Gísli Konráðsson ortu báðir „Rímur af Haka og Hagbarði“. Nafnið er annaðhvort myndað af nafnorðinu „haki“, þ.e. „verkfæri; krókur, krókstjaki“, eða er sama nafn og „Hagen“ í þýsku sem þekkist m.a. í „Niflungakvæðinu“ frá 12. öld, en það er leitt af fornháþýska nafnorðinu „hag“, þ.e. „umgirt svæði, hagi“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.