Gissur

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 63 bera nafnið

Nafnið var Óðinsheiti að fornu og kemur fyrir í Landnámu, fornsögum og fornbréfum - þekktir nafnberar voru meðal annars Gissur biskup Ísleifsson og Gissur hvíti Teitsson. Uppruni er óviss. Ein tilgáta er að forliðurinn sé skyldur sögninni „að giska“ og nafnið gæti þá merkt „hinn getspaki“. Aðrar skýringar tengja það við orðið „geirr“ (spjót) eða nafnið „Gísli“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn