Fenris
Drengjanafn· 2 atkvæði
Fenris er dregið af Fenrisúlfi, hinum ógurlega úlfi í norrænni goðafræði; nafnið Fenrir merkir líklega „sá sem býr í feni“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
FenrirSamsett af Fen-, sem mögulega þýðir fen, og ‘hris’, sem þýðir sprek. Stytting á Fenrisúlfur. Fenrisúlfur var afkvæmi Loka og Angurboðu í norrænu Goðafræðinni.FengurNafnið gæti verið hið sama og nafnorðið „fengur“ sem merkir veiði, vinningur en „fengur“ var einnig rúnastafur til forna.FenixFenix er komið af nafninu Phoenix, af gríska orðinu „phoinix“. Fönix var ódauðlegur goðsagnafugl sem reis upp úr eigin ösku; orðið merkir einnig „dökkrautt“.FrancisFrancis er ensk mynd ítalska nafnsins „Francesco“ sem merkti upphaflega „franskur maður“.FelixNafn þetta er komið af latneska orðinu "felix" sem merkir frjósamur.FeykirNafnið er skylt sögninni „feykja“, sem merkir að láta fjúka eða blása einhverju burt. Að baki nafngjöfinni gæti í einhverju tilviki legið fjallsnafnið „Feykir“ í Skagafirði.FertramNafnið kemur fyrir í „Rímum af Fertram og Plató“ sem ortar voru á 17. öld, og Sigurður Breiðfjörð orti einnig rímur út af þeirri sögu sem gefnar voru út 1836 og gætu hafa verið kveikjan að nafngiftinni. Uppruni er óviss en ef til vill er um sama nafn að ræða og „Bertram“ sem er sett saman af fornháþýska lýsingarorðinu „beraht“ „bjartur“ og nafnorðinu „hrabo“, „hram“, „ram“ „hrafn“.FlóresNafnið kemur víða fyrir í riddarasögum, meðal annars sem nafn sonar Sigurðar þögla, og „Flóres saga og sona hans“ varð vinsælt rímnaefni sem ýtt hefur á nafngiftina. Til Íslands er nafnið trúlega komið frá Danmörku, þar sem það þekkist frá 15. öld. Það er leitt af latneska nafninu „Flora“, en svo hét gyðja vors og blóma í rómverskri goðafræði, og er myndað af „flōs“ sem merkir „blóm“, í eignarfalli „flōres“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →