Ermenga

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 2 bera nafnið

Nafnið er sennilega hið sama og þýska nafnið „Ermengard“ sem aftur er hliðarmynd við „Irmgard“. Það er talið leitt af germönsku orði sem endurgert er „*ermana“ og „*irmana“ og talið er merkja „alltumvefjandi; mikill“. Í mannanöfnum var fyrri liðurinn síðan notaður í herðandi merkingu. Síðari liður er fornháþýska orðið „garto“, í þýsku í dag „Garten“ „garður“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.