Embrek
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 2 bera nafnið
Hugsanlega sama nafn og norska nafnið „Embrik“ sem myndað er af „Engelbrekt“. Það er aftur dregið af þýska nafninu „Engelbrecht“, „Engilbert“. Fyrri liðurinn er sama orð og „engill“ en síðari liðurinn er dreginn af fornháþýsku „beraht“ sem merkir „bjartur“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
2
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
EmilNafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.PatrekNafnið er komið úr fornírsku „Pátraic“ og kemur fyrir á dýrlingi sem tókst að kristna mestan hluta Írlands á 5. öld; hans er einnig minnst í örnefninu „Patreksfjörður“. Heilagur Patrekur er í latneskum heimildum skráður „Patricius“ sem merkir eiginlega „aðalsmaður, maður af ætt patricia“, sbr. latínu „pater“ „faðir“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 18. öld og er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.EmirNafnið er bosnískt að uppruna, leitt af arabíska nafninu „Amir“ í merkingunni „stjórnandi, fursti“. Nafnið er notað víða í Evrópu en er ekki algengt.ErikSama/svipað og Eiríkur.EmmiHugsanlega liggur kvenmannsnafnið „Emma“ að baki nafninu. Einnig gæti „Emmi“ verið upphaflega gælunafn.EmillNafnið „Emill“ er ritmynd af „Emil“ sem er tökunafn hérlendis, trúlega komið úr dönsku. Það er upphaflega dregið af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“ sem merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, meðal annars í myndunum „Émile“ á frönsku, „Emilio“ á ítölsku, spænsku og portúgölsku og „Milo“ á slavneskum málum.EnokNafn þetta er biblíunafn, mynd af hebreska nafninu "Chanok" sem þýðir hinn vígði. Chanok var sonur Kains sem aftur var sonur Adams.EinarNafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →