Elíana
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 20 bera nafnið
Nafnið er af frönskum rótum, en franska myndin er „Éliane“. Það er aftur komið úr latínu „Aeliana“, sem er kvenkynsmynd af rómverska fjölskyldunafninu „Aeliānus“ og er talið leitt af gríska orðinu „hēlios“ sem merkir sól. Nafnið þekkist einnig í Noregi og er þar talið afleiðsla af nöfnum sem hefjast á „El-“.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
22
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
22
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
EleanaNafnið er skylt hebresku nöfnunum „Eliana“ og „Ilana“ í merkingunni „Guð hefur svarað“.ElíaElía er íslensk mynd af nafninu Elías, sem er af hebreskum rótum („Elíjah“, אֱלִיָּהוּ) og merkir „Guð minn er Jahve“.ElínaSama/svipað og Elín.ElínoraUppruni nafnsins er óviss. Sumir giska á arabískan uppruna og að nafnið hafi borist með márum til Spánar og þaðan til Frakklands, en það eigi rætur að rekja til arabísks orðs, „ellinor“, sem merkir „Guð er ljós mitt“. Aðrir telja að nafnið sé portúgalskt, grískt eða keltneskt. Til Englands er nafnið talið komið úr fornfrönsku, „Alienor“, á 12. öld með konu Hinriks II., en franska myndin nú er „Eléonore“. Þjóðverjar tóku upp nafnið frá Englendingum á 18. öld, einkum í myndinni „Leonore“. Nafnið þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Svíþjóð frá 17. öld en í Noregi er algengari mynd þess „Ellinor“.ElínóraSama/svipað og Elenóra.ElísaNafn þetta er að uppruna stytting á nafninu Elísabet.ElísabetNafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.ElíannaNafnið er af frönskum rótum, en franska myndin er „Éliane“. Það er aftur komið úr latínu „Aeliana“, sem er kvenkynsmynd af rómverska fjölskyldunafninu „Aeliānus“ og er talið leitt af gríska orðinu „hēlios“ sem merkir sól. Nafnið þekkist einnig í Noregi og er þar talið afleiðsla af nöfnum sem hefjast á „El-“.