Brími
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 2 bera nafnið
Af nafnorðinu „brími“ sem merkir „eldur“ og var algengt orð í kenningum í fornum kveðskap.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
BrímirUppruni nafnsins er óviss. Hugsanlega er um sama nafn að ræða og „Brími“ með viðskeytinu „-ir“.BrimiNafnið er dregið af orðinu „brim“ sem merkir mikill sjávargangur, stórar öldur.BrekiÝmist talið að nafn þetta merki brotsjór eða blindsker, eða þá að það merki eldur.BragiNafn þetta er leitt af orðinu "bragur" sem merkir kveðskapur. Bragi var skáldskaparguð í norrænni goðafræði. Einnig merkir nafnorðið "bragur" fyrirmaður, - höfðingi og telja sumir þá út frá því að nafnið Bragi merki ágætur maður.BroddiTvær merkingar geta átt við þetta nafn. Sumir telja að hér sé um að ræða mynd orðsins "broddur" og þá í merkingunni spjót, - oddur, - fremsti hluti einhvers. Aðrir minna á að broddur er fyrsta mjólkin eftir barnsburð og nafn þetta gæti því átt að tákna þann sem fyrstur nýtur, er fremstur, fyrstur.BjarmiOrðið „bjarmi“ er þekkt frá 15. öld í merkingunni „glampi, skíma“. Það á sér ekki beina samsvörun í skyldum málum en er hugsanlega skylt lýsingarorðinu „bjartur“.BrunoBruno þekkist í Danmörku frá miðöldum og í Svíþjóð frá 18. öld, og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi þar sem heilagur Brúnó var uppi á 10. öld. Nafnið er þýsk stytting á nöfnum sem hefjast á „Brun-“ sem merkir „brúnn“.BrianSama nafn og Brjánn. Úr írsku; uppruni óviss en líklega af keltneskri rót „brixs“ sem merkir „hæð, hár“ eða „brigā“ sem merkir „máttur“. Nafnið er talið merkja „hinn tigni“.