Brandr
Nafnið hefur tíðkast hérlendis frá upphafi og kemur fram í fornsögum og fornbréfum. Það er sömu merkingar og „brandur“ „sverðsblað, sverð“, sbr. færeysku „brandur“ „sverð, eggvopn“, fornensku „brand“ og fornháþýsku „brant“ „sverð“. Nafnið „Brand“ er þekkt í Danmörku og „Brandur“ í Færeyjum. Í Noregi þekktist það eitthvað til forna, m.a. í gömlum samsetningum eins og „Herbrand“, og aðalpersónan í frægu leikriti eftir Ibsen heitir „Brand“ (1866). Í Þýskalandi tíðkast myndin „Brand“ sem stuttmynd af samsettum nöfnum eins og „Brandolf“ og „Hildebrand“. Viðliðurinn „-brandur“ kemur fyrir í karlanöfnum, t.d. „Ásbrandur“, „Guðbrandur“, „Hildibrandur“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →