Bót

Stúlkunafn Samþykkt· 1 atkvæði

Bót hét ambátt Ketilbjarnar gamla í Landnámu. Nafnið er líklegast leitt af orðinu „bót“ sem merkir bati, betrun, lagfæring. Nafnliðurinn er sennilega vesturgermanskur að uppruna: í fornensku var til nafnorðið „bōt“ sem merkir betrun, hjálp, uppbót, í miðensku sögnin „bōtnen“ sem merkir bæta, og í fornháþýsku nafnorðið „buoza“ sem merkir betrun, iðrun. „Bót-“ er forliður í nokkrum gömlum nöfnum, t.d. „Bótey“, „Bóthildur“ og „Bótólfur“. Hann hefur einnig verið tengdur fornháþýska orðinu „boto“ sem merkir sendiboði eða stjórnandi, en það er ekki eins sennilegt.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.