Birningur
Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 3 bera nafnið
Nafnið er leitt af „Björn“ með viðskeytinu „-ingur“. Einn Birningur er nefndur í Landnámu og tveir menn með þessu nafni koma fyrir í Sturlungu, auk þess sem nafnið kemur fyrir í Vopnfirðinga sögu.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
3
Annað nafn
3
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
BirtingurNafnið er skylt sögninni og nafnorðinu „birta“ og lýsingarorðinu „bjartur“ og er myndað með viðskeytinu „-ingur“. „Birtíngur“ er einnig nafn á sögupersónu og samnefndri bók eftir Voltaire, „Candide ou l’optimisme“, sem Halldór Laxness þýddi 1945 og gaf heitið „Birtíngur eða bjartsýnin“ - ef til vill hefur þýðingin átt þátt í að endurvekja nafnið.BirnirNafn þetta er það sama og nafnið Björn en myndað af kvennafninu Birna.BirgirNafn þetta er skylt sögnunum að birgja, - að bjarga og táknar því bjargvætt eða þann sem bjargar/hægt er að reiða sig á.BirkirNafn þetta að öllum líkindum leitt af kvennafninu Björk.BæringurNafn þetta er líklega komið úr þýsku þar sem það er sagt Berngard og er það nafn sett saman af forliðnum "bero" sem merkir björn og viðliðnum "gart" sem merkir vörn.BrettingurÁ söguöld var uppi Brettingur á Brettingsstöðum á Flateyjardal. Nafnið er trúlega leitt af lýsingarorðinu „brattur“ sem merkir fattur, hress, röskur, með viðskeytinu „-ing-“, sbr. „brettingur“ sem merkir hávaðasamur maður.BrynjólfurSama/svipað og Brynjúlfur.GuðlaugurNafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "laugur" sem merkir tær, - hreinn.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →