Adrían
Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 106 bera nafnið
Af Hadrianus: frá Hadria. Hadria var bær í norður Ítalíu. Adríahafið hefur nafn sitt þaðan, en það er hafið sem skilur að Ítalíu og Balkanskagann. Sjö páfar hafa borið þetta nafn.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
102
Fyrsta nafn
10
Annað nafn
112
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
AdrianNafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.AdríelNafnið er hebreskt að uppruna og kemur meðal annars fyrir í Fyrri Samúelsbók sem nafn á tengdasyni Sáls og í Síðari Samúelsbók. Það er talið merkja „Guð er herra minn“.AríanTalið hollensk hliðarmynd nafnsins „Adrian“, sem verður „Adrían“ á íslensku.JúlíanNafn þetta er komið af latneska nafninu Julianus, sem dregið var af nafninu JúlíusBastíanBastían er stytting á nafninu „Sebastían“.EvíanNafnið er eitthvað notað í Noregi og giskað er á að það sé ef til vill hliðarmynd við „Evyann“ sem aftur er samandregin mynd af „Evy“ og „Ann“. Óvíst.AaronAron er biblíunafn og hét svo bróðir Móses sem Guð útnefndi talsmann hans; hann varð síðar fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en trúlega er það fremur af egypskum en hebreskum uppruna. Sú hefðbundna skýring að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“, „hinn sterki“, er líklega alþýðuskýring. Nafnið samsvarar arabíska nafninu „Harun“ og er vel þekkt meðal gyðinga. Í ensku og þýsku er „Aaron“ algengasta mynd nafnsins en í Norðurlandamálunum „Aron“; það þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 14. öld. Á Íslandi var nafnið líklega tekið upp á 12. öld og kemur m.a. fram í Sturlungu, þar sem sagt er frá Aroni Bárðarsyni í Selárdal og Aroni Halldórssyni í Ögri. Ritmyndin „Aaron“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2013.KilíanNafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.