Raða eftir
Nafn þetta er fengið úr goðafræðinni. Urður var ein þriggja örlaganorna sem réðu aldri manna, voru systur og hétu Urður, Verðandi og Skuld. Nafnið er tengt fornsaxneska orðinu "wurth" sem merkir örlagadís.
Nafn þetta hefur bæði verið tengt við orðið "unnur" í merkingunni alda, - bára og einnig hefur það verið tengt við sögnina "unna"´sem merkir að elska, - þykja vænt um.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Unn-" og viðliðnum "-dís".
Nafn þetta er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-björg“.
Nafnið var upphaflega notað um vatnadísir og er komið úr latínu „undine“ sem merkir vatnadís, dregið af „unda“ sem merkir alda. Sagan Undine eftir Friedrich de la Motte-Fouqué, sem kom út 1811, átti sinn þátt í að kynna nafnið, en hún fjallar um vatnadísina Undínu sem gekk að eiga mennskan mann til þess að verða ódauðleg. Steingrímur Thorsteinsson þýddi söguna á íslensku og kom hún út 1861. Lortzing samdi óperu um söguna við texta E.T.A. Hoffmanns, og vesturíslenska skáldkonan Helga Baldvinsdóttir orti undir dulnefninu Undína á 19. öld.
Tvær hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu. Annars vegar er talið að nafnið sé skylt sögninni "una" sem merkir að dvelja, - kunna vel við sig, og hinsvegar að nafnið tengist latneska orðinu "unus" sem merkir einn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →