Raða eftir
Rafaela er spænsk og portúgölsk kvenkynsmynd af nafninu Rafael. Það er af hebreskum rótum, „rafa“ og „el“ („Guð“), og merkir „Guð hefur læknað“.
Raven er komið af enska orðinu „raven“ sem merkir „hrafn“, af fornenska orðinu „hræfn“. Það vísar til svarta fuglsins.
Ríma er íslenskt kvenmannsnafn og merkir „ríma“, það er kvæði undir sérstökum bragarhætti, sbr. íslenskar rímur fyrri alda.
„Raggý“ er algeng stytting á nöfnunum „Ragnheiður“ og „Ragnhildur“.
Rei er japanskt kvenmannsnafn þar sem merking ræðst af kanji-táknum; algengar merkingar eru „bjalla“, „fögur“ og „glit jaðes“.
Roj er kvenmannsnafn af kúrdneskum uppruna og merkir „sól“ eða „dagur“; algengt nafn meðal Kúrda víða um heim.
Nafnið er upprunnið úr jiddísku og merkir „hreinn, tær“.
Nafnið er enskt að uppruna, „Rosemary“, og er rakið til latneska jurtarheitisins „ros marīnus“. Í sumum tilvikum er nafnið sett saman af „Rose“ og „Mary“.
Að baki nafninu liggur heitið á höfuðborg Ítalíu, „Roma“.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Ragn-“ og viðskeytinu „-ý“.
Erlend mynd nafnsins „Rósa“, sem er komið úr latínu „rosa“ og er nafn á blómi. Á miðöldum voru liljan og rósin meðal tákna Maríu meyjar og var rósin ímynd píslarvottanna sem létu líf sitt fyrir trúna. Talið er að Maríudýrkun miðalda hafi stuðlað að vinsældum nafnsins og útbreiðslu þess. Eysteinn Ásgrímsson orti helgikvæðið „Lilju“ en Sigurður blindur (eða Sigurður Narfason í Fagradal) orti „Rósu“ og nutu bæði kvæðin vinsælda á miðöldum og síðar.
Nafnið er sett saman af nafnorðinu „rökkur“, sem merkir húm eða ljósaskipti, og viðliðnum „-dís“.
Nafnið er algengt eiginnafn í hinum enskumælandi heimi, einkum Bandaríkjunum, og er dregið af enska jurtarheitinu „rose“, sbr. íslenska nafnið Rós.
Nafnið er upphaflega ítölsk smækkunarmynd af „Rosa“ og öðlaðist vinsældir vegna átrúnaðar á heilaga Rósalíu á Sikiley á 12. öld. Þaðan breiddist nafnið út til annarra Evrópulanda.
Nafnið er ungt í íslensku og er ef til vill leitt af karlmannsnafninu „Rökkvi“.
Nafnið finnst bæði í grískri og rómverskri goðafræði og er hliðarmynd við „Rhea“. Í grískri goðafræði var Rhea dóttir Gæju og Úranusar og eiginkona og systir Krónosar. Hún var móðir Seifs og annarra goða. Í rómverskri goðafræði var Rhea Silvia móðir Rómúlusar og Remusar sem lögðu grunninn að Rómaborg.
Rein er íslenskt nafn af orðinu „rein“ sem merkir „mjó ræma af grónu landi“, til dæmis milli akra.
Nafnið er spænskt, leitt með viðskeytinu „-a“ af karlmannsnafninu „Ramón“. Það öðlaðist allnokkrar vinsældir vestan hafs eftir að skáldsaga Helen Hunt Jackson um stúlkuna Ramónu var gefin út 1884 og vegna vinsæls dægurlags um stúlkuna Ramónu. „Ramón“ er spænsk aðlögun að nafninu „Raymond“ sem er normanskt að uppruna, sett saman af germönsku nafnliðunum „ragin“ „ráð“ og „mund“ „verndari“.
Að uppruna írskt kvenmannsnafn, „Rori“, „Rory“, dregið af nöfnunum „Roderick“ og „Robert“. Í enskumælandi löndum er það einnig notað sem karlmannsnafn.
Nafnið er enskt að uppruna og talið dregið af heiti eðalsteinsins „rúbíns“, samanber latínu „rubīnus“ af lýsingarorðinu „rubeus“ sem merkir „rauður“.
Nafnið kemur fyrir í manntali 1703 þar sem stúlka í Árnessýslu var skráð „Ranka Sveinsdóttir“. Hún var niðursetningur og hefur nafnið hugsanlega verið stuttnefni hennar.
Fyrirmynd nafnsins er persónan Ellen Ripley í hinum vinsælu Alien-kvikmyndum.
Nafnið er myndað af karlmannsnafninu „Rósinkrans“ með viðskeytinu „-a“.
Nafnið er talið enskt og franskt, dregið af latneska nafninu „Roxana“ og gríska nafninu „Roxanē“ sem mun hafa verið nafn eiginkonu Alexanders mikla. Nafn hennar var sennilega af persneskum uppruna.
Nafnið var þekkt sem listamannsheiti Ragnhildar Óskarsdóttur (1940–1996).
Uppruni er ekki fullljós en hugsanlega er nafnið sótt til nafnorðsins „reynir“, sem merkir trjátegund, og því tengt nafninu „Reynir“.
Nafnið er stytting á „Rannveig“ og þekkist sem „Rannvá“ í Færeyjum, en þaðan hefur nafnið hugsanlega borist.
Nafn þetta er ýmist notað sem gælunafn fyrir "Rannveig" eða þá að talið er að það sé tökunafn frá Norðurlöndunum af nafninu "Randíður"
Nafnið er ungt hér á landi sem eiginnafn en er vel þekkt gælumynd af ýmsum kvenmannsnöfnum.
Rosita er spænskt gælunafn af nafninu Rosa, sem er af latneska orðinu fyrir blómið og merkir „rós“.
Rebecca er hebreskt kvenmannsnafn, komið af „Rivka“ (רִבְקָה). Það er af semítískri rót sem tengd er merkingunni „að binda“ eða „tengja“. Í Gamla testamentinu er Rebekka kona Ísaks.
Rósenkrans er af þýska ættarnafninu Rosenkranz „rósakrans, talnaband“; samsett úr rós og krans.
Nafn þetta er sett saman af fornháþýska nafnorðinu "hroth" sem merkir frægð, - hróður og fornháþýska nafnorðinu "munt" sem merkir vernd.
Nafnið kemur fyrir í Snorra-Eddu, þar sem Röskva var systir Þjálfa og valdi Þór þau til ferðar með sér til Útgarða-Loka. Nafnið er dregið af lýsingarorðinu „röskur“ sem merkir vaskur, fljótur.
Uppruni er óviss en nafnið gæti verið myndað af karlmannsheitinu „Rafn“.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "rún" sem merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "rún" sem merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja.
Nafn þetta er algeng stytting nafna sem enda á "-rún". Einnig er það skylt nafnorðinu "rúna" sem merkir trúnaðarvinkona.
Nafn þetta merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun.
Uppruni nafnsins er óviss en ef til vill er um upphaflega gælumynd að ræða.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.
Nafn þetta er fengið af enska nafninu "Rosemary" sem sett er saman af jurtaheitinu "Rose" og nafninu "Mary" og hefur verið lagað að íslensku.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðskeytinu "lín".
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og kvennafninu "Linda" sem merkir mjúk, - fögur, - hrein.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein, - uppspretta.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "ey".
Nafnið er erlent að uppruna og dregið af nafninu „Rósalín“. Það hefur verið lagað að íslensku þannig að fyrri liður þess er „Rós-“ en síðari liður viðskeytið „-ía“.
Nafn þetta er sett saman af plöntuheitinu rós og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.
Nafnið er sett saman af „Rósa“ og „Anna“. Nafnmyndirnar „Rosanna“ og „Rosanne“ eru notaðar í enskumælandi og þýskumælandi löndum.
Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein. Önnur hugmynd er sú að nafnið sé komið úr þýsku og sé sett saman af forliðnum "hroth" sem merkir hróður og viðliðnum "lind" sem merkir mildur.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →