Raða eftir
Omar er arabískt karlmannsnafn (عمر, Umar), dregið af rótinni „ʿamara“. Nákvæm merking er á reiki en er gjarnan tengd „löngu lífi“ eða „blóma“. Nafnið kemur einnig fyrir sem biblíunafn af hebreskum rótum.
Nafnið er komið úr latínu „octāvus“ sem merkir „áttundi“. „Oktāvius“ var nafn á frægri rómverskri ætt. Nafnið hefur verið notað á Englandi og á Viktoríutímanum var ekki óalgengt að áttunda barn, væri það sonur, væri látið heita „Octavius“.
Odin er komið af norræna nafninu Óðinn, af orðinu „óðr“ („æði, andagift, hugmóður“). Óðinn var æðstur goða í norrænni goðafræði.
Nafnið er samsett úr nafnorðunum „ormur“, sem merkir maðkur eða slanga, og „víkingur“.
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Íslendinga sögum, auk Sturlungu, en var þar fátítt. Það er önnur mynd nafnsins „Óttar“ og þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum, sbr. fornsænsku og forndönsku „Otter“ og fornensku „Ohther“, en einnig eru heimildir um „Ottir“ og „Oittir“ í gamalli norsku og myndina „Öttrekr“ í Noregi upp úr 1300. Það er sett saman af forliðnum „Ótt-“, skylt „ótti“, og viðskeytinu „-ar“ sem merkir hermaður, komið úr *Ohtaharjaʀ sem merkir „hermaður sem veldur ótta“.
Nafnið er hugsanlega leitt af nafninu „Oktavía“ eða er hliðarmynd við „Oktavíus“.
Nafnið er víxlmynd við „Áleifur“, komið af fornnorrænu „Anu-laibaR“ sem er samsett af „Anu-“ er merkir forfaðir og „-laibaR“ er merkir afkomandi, erfingi, sbr. „Leifur“. Kvenmannsnafnið „Ólöf“ samsvarar þessu nafni. „Ólafur“ kemur fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum og fornbréfum. Frægir menn með þessu nafni voru t.d. Ólafur Tryggvason Noregskonungur sem kristnaði Noreg og Ísland og Ólafur helgi Haraldsson Noregskonungur. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum og hefur verið tekið að láni þaðan á Englandi og í Þýskalandi. Danskar myndir eru „Olaf“, „Olav“ og yngri myndin „Ole“. Norskar myndir nafnsins eru „Olav“, yngri myndir „Ola“ og „Ole“. Sænskar myndir eru „Olof“ eða „Olov“ en einnig þekkjast „Ola“, „Olav“ og „Ole“.
Omid er persneskt nafn sem merkir „von“. Það er notað bæði sem karl- og kvenmannsnafn.
Nafnið er grískt að uppruna og sótt í gríska goðafræði. Orfeus var mikill tónlistarmaður og sagt var að hann gæti stjórnað náttúrunni með lýruleik sínum. Þekktust er þó sagan af ferð hans í dauðraríkið til að reyna að fá þaðan aftur Evridísi (Eurydike). Nafnið hefur verið notað á Ítalíu sem „Orfeo“ og barst þaðan til enskumælandi landa.
Nafnið er komið úr latínu „octāvus“ sem merkir „áttundi“. „Oktāvius“ var nafn á frægri rómverskri ætt. Nafnið hefur verið notað á Englandi og á Viktoríutímanum var ekki óalgengt að áttunda barn, væri það sonur, væri látið heita „Octavius“.
„Olli“ er notað sem gælunafn manna sem bera t.d. nafnið „Ólafur“. Það er einnig algengt karlmannsnafn í finnsku, dregið af nafninu „Olavi“.
Að baki nafninu liggur dýrsheitið „otur“, komið úr germönsku „*utra-“, skylt gríska orðinu „hýdros“ sem merkir „vatnaslanga“, og merkir eiginlega „vatnadýr“.
Nafn þetta er upphaflega stytting á þýskum nöfnum sem byrjuðu á "Auð-" og merkir auður, - hamingja.
Ungt nafn í íslensku sem er trúlega hliðarmynd af nafninu „Otur“.
Nafnið þekktist til forna og er sennilega hliðarmynd af nafninu „Oddkell“.
Nafnið Orvar er notað í Noregi. Uppruni nafnsins „Örvar“ er óviss en það er trúlega myndað af nafnorðinu eða lýsingarorðinu „ör“ með hliðsjón af nafninu „Ævar“. Ef til vill var fornkappinn Örvar-Oddur kveikjan að einhverri nafngiftinni.
Nafn þetta er samsett af nafnorðinu "ormur" og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.
Erlent nafn af óvissum uppruna, notað bæði sem eiginnafn og ættarnafn erlendis. Talið er að það sé leitt af nafninu „Oliver“.
Nafn þetta er fengið af latneska orðinu "olivarius" sem merkir ólívutré.
Nafn þetta er dönsk mynd karlmannsnafnsins Hólmgeir sem merkir vopn á vígvelli.
Nafnið er víxlmynd við „Áleifur“, komið af fornnorrænu „Anu-laibaR“ sem er samsett af „Anu-“ er merkir forfaðir og „-laibaR“ er merkir afkomandi, erfingi, sbr. „Leifur“. Kvenmannsnafnið „Ólöf“ samsvarar þessu nafni. „Ólafur“ kemur fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum og fornbréfum. Frægir menn með þessu nafni voru t.d. Ólafur Tryggvason Noregskonungur sem kristnaði Noreg og Ísland og Ólafur helgi Haraldsson Noregskonungur. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum og hefur verið tekið að láni þaðan á Englandi og í Þýskalandi. Danskar myndir eru „Olaf“, „Olav“ og yngri myndin „Ole“. Norskar myndir nafnsins eru „Olav“, yngri myndir „Ola“ og „Ole“. Sænskar myndir eru „Olof“ eða „Olov“ en einnig þekkjast „Ola“, „Olav“ og „Ole“.
Nafn þetta er myndað af mánaðarheitinu "október" sem á latínu er "october" en "octo" merkir töluna átta.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.
Nafn þetta er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "steinn" sem merkir steinn, - harður.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "kell" sem merkir hjálmur.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og nafninu "Freyr" sem táknar herra, komið úr norrænni goðafræði.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Odd" sem er komið af orðinu "oddur" sem merkir broddur, - spjót og viðliðnum "bergur" sem merkir bjargvættur.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →