NöfnÖll nöfn á mannanafnaskrá, með leit og síum
GreinarGreinar og fróðleikur um íslensk nöfn
UppáhaldsNöfnin sem þú hefur vistað
LeikurMannanöfnUm Veldu nafn
Útlit

Um Veldu nafn

Veldu nafn er gagnagrunnur íslenskra mannanafna. Finndu nöfn fyrir börn, gæludýr, persónur í bók eða bara af forvitni. Búðu til lista og deildu með öðrum.

Nánar um verkefnið

Flýtileiðir

Öll nöfnStúlkunöfnDrengjanöfnGreinarMannanöfn á ÍslandiÚrskurðir mannanafnanefndarUppáhaldsnöfn

Tól

Nafn dagsinsBera saman nöfnMá nefna barnið …?Fullt nafn

Hafa samband

hallo@veldunafn.isAuglýsingar: auglysingar@veldunafn.isPersónuvernd

Gögn fengin frá Þjóðskrá Íslands

Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Stofnun Árna Magnússonar

Skýringar á erlendum nöfnum að hluta byggðar á Behind the Name og Nordic Names

© 2026 Veldu nafn

Búið til með á Íslandi

  • Forsíða
  • Nöfn
  • Uppáhalds

Nafnalisti yfir íslensk mannanöfn

Lengd1–14 stafir
1
14
Atkvæði1–6 atkvæði
1
6
145nöfn2 síur

Raða eftir

Síða 1
  • Gúníta
    Stúlka✓Samþykkt8. maí 2025·3 atkv.
  • Gonzales
    StúlkaHafnað16. sep 2024·3 atkv.·4 bera nafnið

    Gonzales er spænskt ættarnafn af Gonzalo (miðaldalatína Gundisalvus), af germanska gunda „orrusta“; síðari liður óviss.

  • Gabríerla
    Stúlka✓Samþykkt13. mar 2024·4 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er líklega samsett úr nafninu „Gabríela“ og fuglsheitinu „erla“, sbr. nafnið „Erla“.

  • Gjöll
    Stúlka✓Samþykkt6. des 2023·1 atkv.

    Nafnið merkti í fornu máli „hávaði, orrusta“. Það var einnig nafn á hellu sem Fenrisúlfur var fjötraður við og árheiti í Helheimum.

Auglýsing

  • Garbó
    Stúlka✓Samþykkt30. okt 2023·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er ítalskt að uppruna og talið merkja „vingjarnlegur“.

  • Gró
    Stúlka✓Samþykkt4. maí 2023·1 atkv.·4 bera nafnið

    Gróa hét völva ein, kona Aurvandils hins frækna, samkvæmt Snorra-Eddu. Nafnið kemur einnig fyrir í Landnámu og í nokkrum Íslendinga sögum. Nefnifallsmyndin var upphaflega „Gróa“ en í aukaföllum „Gró“, þar sem „-u“ féll brott á eftir löngu sérhljóði; nefnifallsmyndin „Gró“ er síðar til orðin fyrir áhrif frá endingarlausu aukaföllunum. „Gro“ er vel þekkt nafn á Norðurlöndum, einkum í Noregi, og þaðan barst það til Bretlands. Að baki liggur sennilega sögnin að „vaxa, spretta“ en einnig hefur verið giskað á keltneskan uppruna og væri nafnið þá skylt orðinu „gruach“ sem merkir „kona“.

  • Gleymmérei
    Stúlka✓Samþykkt9. mar 2023·3 atkv.

    Nafnið er dregið af plöntuheitinu „gleymmérei“.

  • Gúrí
    Stúlka✓Samþykkt9. mar 2023·2 atkv.·1 ber nafnið

    Uppruni nafnsins er óviss en talið er að um gælunafn geti verið að ræða, til dæmis fyrir konu sem heitir „Guðríður“.

  • Ganna
    Stúlka✓Samþykkt9. feb 2023·2 atkv.·4 bera nafnið

    Uppruni nafnsins er óljós, en það gæti verið gælunafn.

  • Grótta
    Stúlka✓Samþykkt2. nóv 2022·2 atkv.·1 ber nafnið

    Merking er óviss. Möguleiki er að örnefnið „Grótta“ sé að baki nafninu, en nafnorðið „grótta“ er einnig til í málinu í merkingunni „lítið jarðfall, laut, hola“ og í eldra máli „vatnsmylla“.

  • Gleymérei
    StúlkaHafnað2. nóv 2022·3 atkv.

    Gleymérei er íslenskt kvenmannsnafn dregið af blómheitinu gleym-mér-ei; merkir bókstaflega „gleymdu mér ei“.

  • Gísella
    Stúlka✓Samþykkt5. sep 2022·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er komið úr þýsku „Gisela“ og þekkist í Danmörku frá 14. öld og í Svíþjóð frá 18. öld. Að baki liggur fornháþýska orðið „gīsal“ sem merkir herfangi, gísl, og er nafnið skylt nafninu Gísli.

  • Gunna
    Stúlka✓Samþykkt10. ágú 2022·2 atkv.·4 bera nafnið

    Nafn þetta er annaðhvort gælumynd kvennafna sem byrja á "Guð-" s.s. Guðrún, eða þá að það er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "-a"

  • Gaja
    Stúlka✓Samþykkt25. apr 2022·2 atkv.·10 bera nafnið

    Uppruni er óviss en nafnið á hugsanlega rætur að rekja til gríska orðsins „gaia“ sem merkir „jörð“.

  • Geitin
    StúlkaHafnað17. nóv 2021·2 atkv.

    Geitin er íslenskt kvenmannsnafn af orðinu geit (geitin) sem merkir „geit, húsdýr af geitakyni“.

  • Gjóska
    Stúlka✓Samþykkt9. sep 2021·2 atkv.·1 ber nafnið

    Að baki nafninu liggur nafnorðið „gjóska“ sem merkir gosefni.

  • Guðrúnhalla
    StúlkaHafnað6. júl 2021·4 atkv.

    Guðrúnhalla er samsett úr kvenmannsnöfnunum Guðrún (af guð og rún „launhelgi“) og Halla (af hallr „steinn“).

  • Gulla
    Stúlka✓Samþykkt24. feb 2021·2 atkv.·4 bera nafnið

    Gulla er algengt gælunafn kvenna sem heita Guðlaug.

  • Gára
    Stúlka✓Samþykkt11. jún 2020·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gára“ sem merkir ýfing á vatni, smá alda.

  • Guðna
    Stúlka✓Samþykkt1. des 2017·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er myndað af karlmannsnafninu „Guðni“ með viðskeytinu „-a“.

  • Gilla
    Stúlka✓Samþykkt22. sep 2017·2 atkv.·1 ber nafnið

    Uppruni nafnsins er óviss en talið er að um gælunafn geti verið að ræða.

  • Gratíana
    Stúlka✓Samþykkt22. sep 2017·4 atkv.

    Nafnið tengist ítalska nafninu „Graziàna“, sem er vel þekkt á Ítalíu. Það er leitt af latneska nafnorðinu „grātia“ sem merkir ánægja, þokki, og lýsingarorðinu „grātus“ sem merkir ánægjulegur, viðfelldinn.

  • Glytta
    Stúlka✓Samþykkt22. sep 2017·2 atkv.·1 ber nafnið

    Uppruni óviss en nafnið hefur verið tengt sögninni „glytta“ sem merkir að glampa eða bjarma fyrir.

  • Gnádís
    Stúlka✓Samþykkt21. ágú 2017·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er sett saman af nafnorðinu „Gná“ og viðliðnum „-dís“.

  • Gabriela
    Stúlka✓Samþykkt18. nóv 2016·4 atkv.·202 bera nafnið

    Sama/svipað og Gabríela.

  • Gola
    Stúlka✓Samþykkt5. ágú 2016·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gola“ sem merkir „blær, vindur, kaldi“.

  • Gígí
    Stúlka✓Samþykkt5. feb 2016·2 atkv.·1 ber nafnið
  • Gail
    StúlkaHafnað24. apr 2015·2 atkv.·4 bera nafnið

    Gail er enskt gælunafn myndað af Abigail, af hebresku av „faðir“ og gil „gleði“; merkir „faðir minn er gleði“.

  • Grethe
    Stúlka✓Samþykkt5. sep 2013·2 atkv.·3 bera nafnið

    Nafnmyndin „Grethe“ er tökunafn sem barst til Danmerkur og Noregs frá Þýskalandi, þar sem „Greta“, „Grete“ og „Grethe“ eru vel þekkt nöfn. „Grete“ þekkist í Danmörku frá 13. öld, „Greta“ í Svíþjóð frá 14. öld og í Noregi frá þeirri 15. Þýska ævintýrið um Hans og Grétu (þ. „Hans und Grethe“) er talið hafa ýtt undir notkun þessarar ritmyndar. „Gréta“/„Greta“ er upprunalega stytting á nafninu „Margrét“.

  • Gíta
    Stúlka✓Samþykkt8. ágú 2012·2 atkv.·1 ber nafnið

    Talið er að nafnið sé stytting á „Gitta“ sem aftur er stytting á „Birgitta“. „Gita“ er einnig notað sem eiginnafn í Noregi.

  • Gísela
    Stúlka✓Samþykkt8. ágú 2012·3 atkv.

    Nafn þetta er komið af Þýska nafninu "Gisela", en að baki því liggur fornháþýska orðið "gisal" sem merkir herfangi, - gísl.

  • Gunnharða
    Stúlka✓Samþykkt22. des 2011·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Gunn-“ og viðliðnum „-harður“.

  • Georgía
    Stúlka✓Samþykkt16. jún 2011·4 atkv.·1 ber nafnið

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Georg.

  • Gæfa
    Stúlka✓Samþykkt2. des 2010·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gæfa“ sem merkir gifta, hamingja, heill.

  • Glóa
    Stúlka✓Samþykkt24. jún 2010·2 atkv.·3 bera nafnið

    Nafnið er skylt sögninni „glóa“ sem merkir „ljóma, blika, glampa“.

  • Gullý
    Stúlka✓Samþykkt10. ágú 2009·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er algengt sem gælunafn, til dæmis kvenna sem heita „Guðlaug“.

  • Gumma
    Stúlka✓Samþykkt23. des 2008·2 atkv.

    Ungt nafn hérlendis sem er að líkindum upprunalega gælunafn.

  • Grein
    Stúlka✓Samþykkt15. maí 2008·1 atkv.

    Uppruni nafnsins er óviss, en ef til vill dregið af nafnorðinu „grein“ í merkingunni „trjágrein“.

  • Gúa
    Stúlka✓Samþykkt27. sep 2007·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er ungt sem eiginnafn en þekkist vel sem gælunafn ýmissa kvenmannsnafna, svo sem „Guðrún“, „Guðný“ og „Guðbjörg“.

  • Guja
    Stúlka✓Samþykkt6. sep 2007·2 atkv.·3 bera nafnið

    „Guja“ er gælunafn kvenna sem t.d. heita „Guðríður“.

  • Gísla
    Stúlka✓Samþykkt6. jún 2007·2 atkv.·6 bera nafnið

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Gísli.

  • Gull
    StúlkaHafnað6. des 2006·1 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gull“.

  • Gía
    Stúlka✓Samþykkt15. apr 2005·2 atkv.·6 bera nafnið

    Nafnið er nýlegt sem eiginnafn en þekkist sem gælunafn.

  • Gloría
    Stúlka✓Samþykkt18. mar 2005·3 atkv.·6 bera nafnið

    Nafnið er erlent að uppruna og vinsælt í enskumælandi löndum á síðustu öld. Það á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „glōria“ sem merkir „frægð“.

  • Gret
    Stúlka✓Samþykkt20. okt 2004·1 atkv.·1 ber nafnið

    Gret er stytt mynd af Grétu og Margréti, sem er af gríska margarites og merkir „perla“.

  • Grét
    Stúlka✓Samþykkt22. sep 2004·1 atkv.

    Nafnmyndin „Grethe“ er tökunafn sem barst til Danmerkur og Noregs frá Þýskalandi, þar sem „Greta“, „Grete“ og „Grethe“ eru vel þekkt nöfn. „Grete“ þekkist í Danmörku frá 13. öld, „Greta“ í Svíþjóð frá 14. öld og í Noregi frá þeirri 15. Þýska ævintýrið um Hans og Grétu (þ. „Hans und Grethe“) er talið hafa ýtt undir notkun þessarar ritmyndar. „Gréta“/„Greta“ er upprunalega stytting á nafninu „Margrét“.

  • Grace
    StúlkaHafnað22. sep 2004·2 atkv.·67 bera nafnið

    Grace er enskt kvenmannsnafn af latneska orðinu „gratia“ sem merkir „náð“ eða „yndisþokki“. Það var eitt svonefndra dyggðanafna sem urðu til meðal púrítana á 17. öld.

  • Gyðja
    Stúlka✓Samþykkt28. maí 2004·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gyðja“ sem merkir kvenguð.

  • Guri
    StúlkaHafnað1. mar 2001·2 atkv.·2 bera nafnið

    Guri er norsk stytting á nafninu Guðfríðr, sem er myndað af „guð“ og „fríðr“ („fögur, fríð“).

  • Gæflaug
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.

    Nafnið er sett saman úr nafnorðinu „gæfa“, sem merkir hamingja, eða lýsingarorðinu „gæfur“, sem merkir spakur, hógvær, og viðliðnum „-laug“.

  • Gytta
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Það er sennilega sama nafn og „Gitta“, „Gitte“ sem þekkist á öllum Norðurlöndum sem stytting á „Birgitta“.

  • Gyðríður
    Stúlka✓Samþykkt·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafn þetta er hliðarmynd við nafnið Guðríður.

  • Gyða
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·402 bera nafnið

    Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "goð".

  • Gurrý
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·3 bera nafnið

    Gurrý er algeng gælumynd nafna sem hefjast á „Guð-“, einkum nafnsins „Guðríður“.

  • Gunnþórunn
    Stúlka✓Samþykkt·3 atkv.·33 bera nafnið

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Gunnþór með viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - ást.

  • Gunnþóra
    Stúlka✓Samþykkt·3 atkv.·20 bera nafnið

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Gunnþór.

  • Gunný
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·8 bera nafnið

    Nafnið þekkist sem gælunafn af t.d. „Guðrún“, „Guðríður“ og „Gunnhildur“. „Gunný“ er sett saman af forliðnum „Gunn-“ og viðskeytinu „-ý“. Í Noregi er nafnið „Gunny“ notað sem hliðarmynd við „Gudny“ og einnig myndað með forliðnum „Gunn-“, en í Svíþjóð þekkist nafnið „Gunni“ frá 19. öld.

  • Gunnvör
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·18 bera nafnið

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "vör" sem merkir að verja, - gæta yfir.

  • Gunnveig
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

  • Gunnur
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·74 bera nafnið

    Nafn þetta merkir bardagi, - orrusta, - valkyrja.

  • Gunnrún
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·4 bera nafnið

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Gunnlöð
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Löð er skylt so. laða, hneigja að, bjóða heiom.

  • Gunnleif
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "leif" sem merkir arfur.

  • Gunnlaug
    Stúlka✓Samþykkt·2 atkv.·76 bera nafnið

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.