Nöfn
Greinar
Uppáhalds
LeikurMannanöfnUm Veldu nafn
Útlit

Um Veldu nafn

Veldu nafn er gagnagrunnur íslenskra mannanafna. Finndu nöfn fyrir börn, gæludýr, persónur í bók eða bara af forvitni. Búðu til lista og deildu með öðrum.

Nánar um verkefnið

Flýtileiðir

Öll nöfnStúlkunöfnDrengjanöfnGreinarMannanöfn á ÍslandiUppáhaldsnöfn

Tól

Nafn dagsinsBera saman nöfnMá nefna barnið …?Fullt nafn

Hafa samband

hallo@veldunafn.is

Gögn fengin frá Þjóðskrá Íslands

Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Stofnun Árna Magnússonar

Skýringar á erlendum nöfnum að hluta byggðar á Behind the Name og Nordic Names

© 2026 Veldu nafn

Búið til með á Íslandi

  • Forsíða
  • Nöfn
  • Uppáhalds

Nafnalisti yfir íslensk mannanöfn

Lengd1–14 stafir
1
14
Atkvæði1–6 atkvæði
1
6
83nöfn2 síur

Raða eftir

Síða 1
  • Danivaan
    DrengurHafnað26. maí 2026·4 atkv.
  • Draumur
    Drengur✓Samþykkt18. des 2025·2 atkv.

    Draumur er íslenskt karlmannsnafn af orðinu draumur „sýn eða atburðarás sem birtist í svefni“.

  • Dúni
    Drengur✓Samþykkt13. ágú 2025·2 atkv.

    Dúni er íslenskt karlmannsnafn, gælunafn dregið af dúnn „mjúkur fugladúnn, ungfiður“.

  • Deimos
    Drengur✓Samþykkt8. maí 2025·2 atkv.

    Deimos merkir „skelfing“ á grísku. Í grískri goðafræði var Deimos sonur stríðsguðsins Aresar og persónugervingur ógnar; tungl Mars ber einnig nafnið.

  • Dímítrí
    Drengur✓Samþykkt16. apr 2024·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er bæði spænskt, „Dimitri“, og rússneskt, „Dmitri“, og er sótt til grísku gyðjunnar „Demeter“.

  • Doddi
    Drengur✓Samþykkt6. des 2023·2 atkv.·1 ber nafnið

    Doddi er algengt gælunafn karla sem t.d. heita nafni sem hefst á „Þor-“.

  • Dímon
    Drengur✓Samþykkt9. mar 2023·2 atkv.·1 ber nafnið

    Að baki nafninu er ef til vill örnefnið „Dímon“ sem talið er komið úr latínu og merkja „tvífjöll“ eða „tveir eins“. Dímonar eru oftast tveir saman, annar stærri en hinn minni.

  • Díon
    Drengur✓Samþykkt30. nóv 2022·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er upphaflega grískt og talið merkja „guð víns og gleðskapar“.

  • Díbus
    Drengur✓Samþykkt5. sep 2022·2 atkv.
  • Dalur
    Drengur✓Samþykkt5. sep 2022·2 atkv.·3 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „dalur“ sem merkir djúp, innilokuð lægð inni á milli fjalla eða hæða.

  • Diddi
    Drengur✓Samþykkt1. mar 2022·2 atkv.·1 ber nafnið

    Diddi er algengt gælunafn karla, einkum þeirra sem bera nafn sem hefst á „Þor-“.

  • Dylan
    Drengur✓Samþykkt26. jan 2022·2 atkv.·17 bera nafnið

    Nafnið er erlent og rakið til Wales. Í Bandaríkjunum er það kynhlutlaust, þ.e. bæði notað sem nafn á drengi og stúlkur. Nafnið er talið merkja „haf, sjór“.

  • Drómi
    Drengur✓Samþykkt9. sep 2021·2 atkv.·1 ber nafnið

    „Drómi“ merkir fjötur og var nafn á einum af fjötrum þeim sem æsir reyndu að binda Fenrisúlf með samkvæmt Snorra-Eddu. Þaðan kemur orðasambandið „að drepa úr dróma“, sem merkir að leysa úr fjötrum.

  • Döggvi
    Drengur✓Samþykkt14. júl 2020·2 atkv.·3 bera nafnið

    Fyrri liðurinn er dreginn af nafnorðinu „dögg“ sem merkir „áfall, bleyta á grasi“ en viðliðurinn er sóttur til nafna eins og „Tryggvi“ og „Yngvi“.

  • Damíen
    Drengur✓Samþykkt6. nóv 2019·3 atkv.·2 bera nafnið

    Damíen er mynd af nafninu Damian, sem er komið af gríska nafninu Damianos, af sögninni „damazo“ sem merkir „að temja“.

  • Diego
    Drengur✓Samþykkt20. sep 2018·3 atkv.·59 bera nafnið

    Nafnið er spænskt að uppruna, stytting á „San Diego“ (heilagur Jakob), nafni pílagríms frá 12. öld sem meðal annars kemur fram í borgarheitinu Santiago de Compostela á Spáni.

  • Dittó
    Drengur✓Samþykkt20. sep 2018·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er líklega fengið úr japönsku seríunni um Pokémon.

  • Dorri
    Drengur✓Samþykkt26. jún 2018·2 atkv.·1 ber nafnið

    Algengt gælunafn karla sem bera nafn er hefst á „Þor-“.

  • Dengsi
    Drengur✓Samþykkt8. jún 2018·2 atkv.·1 ber nafnið

    „Dengsi“ er algengt gæluorð fyrir „drengur“.

  • Dexter
    Drengur✓Samþykkt22. sep 2017·2 atkv.·9 bera nafnið

    Nafnið er fyrst og fremst notað í enskumælandi löndum. Merkingin er sögð vera „sá sem litar föt“ en gæti einnig tengst latneska orðinu „dexter“ sem merkir hægri; rétthentur, sá sem notar hægri hönd.

  • Diljar
    Drengur✓Samþykkt5. nóv 2015·2 atkv.·5 bera nafnið

    Nafnið er hugsanlega myndað af kvenmannsnafninu „Dilja“ eða „Diljá“ með viðskeytinu „-ar“.

  • Duane
    DrengurHafnað3. okt 2014·3 atkv.·1 ber nafnið

    Duane er komið af írska ættarnafninu Ó Dubháin, sem dregið er af orðinu „dubh“ er merkir „dökkur“ eða „svartur“.

  • Damon
    Drengur✓Samþykkt3. apr 2014·2 atkv.·3 bera nafnið

    Nafnið er af grískum rótum, leitt af sögninni „damān“ sem merkir að temja. Það á rætur að rekja til sögunnar um vinina Damon og Pythias frá því snemma á 4. öld f.Kr., en var lítið notað fyrr en eftir 1930 og þá aðallega í enskumælandi löndum.

  • Dynþór
    Drengur✓Samþykkt29. nóv 2013·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er sett saman af nafnorðinu „dynur“, sem merkir hávaði, kliður, skarkali, og viðliðnum „-þór“, sem er tengt nafninu „Þór“. Nafnið er borið af persónu í Hringadróttins sögu.

  • Dalí
    Drengur✓Samþykkt16. ágú 2013·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er spænsk mynd af nöfnunum „Dal“ og „Dale“ sem eiga rætur að rekja til fornensku „dael“, fornnorrænu „dalr“, í nútímaíslensku „dalur“. Nöfnin eru einkum notuð í Bandaríkjunum. „Dali“ er einnig spænskt ættarnafn, sbr. Salvador Dalí listmálari.

  • Dominik
    Drengur✓Samþykkt21. des 2012·3 atkv.·227 bera nafnið

    Nafnið er dregið af latneska orðinu „dominicus“ í merkingunni „herrans (ef.), sem heyrir til Drottni“ og var fyrr á öldum gjarnan gefið drengjum sem fæddust á sunnudegi. Heilagur Dominicus (1170–1221) stofnaði reglu dóminikana. Nafnið er algengt í Evrópu og er ritháttur breytilegur, t.d. „Dominic“, „Dominick“, „Dominique“.

  • Dante
    Drengur✓Samþykkt21. jún 2012·2 atkv.·5 bera nafnið

    Nafnið þekkist allt frá miðöldum á Ítalíu sem stytting á nafninu „Durante“ í merkingunni „stöðugur, staðfastur“. Þekktasti nafnberinn er án efa Dante (Durante) Alighieri sem samdi verkið „Hinn guðdómlegi gleðileikur“.

  • Damien
    DrengurHafnað14. maí 2012·3 atkv.·7 bera nafnið

    Nafnið er af grískum rótum og er hliðarmynd við nafnið „Damian“, sem er skylt nafninu „Damjan“.

  • Dúnn
    Drengur✓Samþykkt12. ágú 2011·1 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „dúnn“ sem merkir fíngert fiður.

  • Dennis
    Drengur✓Samþykkt27. apr 2011·2 atkv.·27 bera nafnið

    Dennis er komið úr frönsku eða ensku sem stytting af gríska nafninu Díónýsíusi, „vígður Díónýsíusi (guði víns og lífsgleði í grísku goðafræðinni)“. Það er skylt frönsku og rússnesku Denis. Nafnið er þekkt á Norðurlöndum, í Þýskalandi, Ameríku og á Englandi.

  • Dalli
    Drengur✓Samþykkt4. apr 2011·2 atkv.·1 ber nafnið
  • Dolli
    Drengur✓Samþykkt13. júl 2010·2 atkv.·2 bera nafnið

    Algengt gælunafn karla sem bera nafn sem hefst á „Þor-“.

  • Duncan
    DrengurHafnað24. jún 2010·2 atkv.·4 bera nafnið

    Duncan er enskuð mynd af skosk-gelíska nafninu Donnchadh, myndað af „donn“ („brúnn“) og „cath“ („orrusta“), og merkir „brúnn stríðsmaður“.

  • Deníel
    Drengur✓Samþykkt18. feb 2010·3 atkv.·1 ber nafnið

    „Deniel“ er bretónsk hliðarmynd nafnsins „Daníel“.

  • Deimian
    DrengurHafnað8. apr 2008·3 atkv.

    Deimian er hliðarmynd af nafninu Damian, af gríska Damianos sem dregið er af sögninni damazo „að temja“.

  • Deimien
    DrengurHafnað8. apr 2008·3 atkv.

    Deimien er hliðarmynd af nafninu Damian, af gríska Damianos sem dregið er af sögninni damazo „að temja“.

  • Daniyal
    DrengurHafnað8. nóv 2007·4 atkv.

    Daniyal er arabísk mynd af nafninu Daníel, sem er af hebresku og merkir „Guð er dómari minn“.

  • Dreki
    Drengur✓Samþykkt31. okt 2005·2 atkv.·46 bera nafnið

    Nafnið er sömu merkingar og nafnorðið „dreki“, sem merkir þjóðsagnaskepna eða mjög stórt dýr eða maður.

  • Dominic
    DrengurHafnað15. sep 2005·3 atkv.·24 bera nafnið

    Dominic er af síðlatneska nafninu Dominicus, sem merkir „tilheyrandi Drottni“. Það var upphaflega gefið börnum sem fæddust á sunnudegi.

  • Daniel
    Drengur✓Samþykkt18. júl 2005·3 atkv.·691 ber nafnið

    Sama/svipað og Daníel.

  • Díómedes
    Drengur✓Samþykkt6. apr 2004·4 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er komið úr grísku. Kappinn „Díómedes“ tók þátt í Trójustríðinu.

  • Danival
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.·12 bera nafnið

    Uppruni nafnsins er óviss og finnst það ekki í nálægum málum. Hugsanlega er það sett saman af „Daníel“ og nafni sem hefst á „Val“-. Endingin „-val“ gæti einnig verið mynduð með hliðsjón af nafni kappans „Parsivals“, en þar er „-val“ úr fornfrönsku, sbr. latínu „vallis“, „dalur“.

  • Dýrmundur
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.·3 bera nafnið

    Nafn þetta er myndað úr forliðnum "Dýr" sem merkir dýrmætur og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

  • Dýri
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·44 bera nafnið

    Dýrmætur, - máttugur.

  • Dvalinn
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·3 bera nafnið

    Nafn þetta kemur úr norrænni goðafræði. Í Flateyjarbók er Dvalinn nafn á dverg en í Gylfaginningu er Dvalinn nafn á einum af fjórum hjörtum sem éta barr af greinum asks Yggdrasils.

  • Dúi
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·39 bera nafnið

    Nafn þetta er upphaflega gælunafn af ýmsum nöfnum.

  • Dugfús
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu og er sennilega íslenskun á „Dufgus“.

  • Dufþakur
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er komið úr fornírsku „Dubthach“. Forliðurinn er talinn vera fornírska „dub(h)“ sem merkir svartur, dökkur, en viðliðurinn „-thach“ hefur óvissa merkingu. Nafnið gæti ef til vill merkt „hinn svarthærði“ eða eitthvað í þá veruna, sbr. írska nafnið „Duald“ sem er ensk mynd af gelíska nafninu „Dubhaltach“ og merkir hugsanlega „svarthærður“ eða „svartfættur“. Dufþakur hét þræll Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, sem lagði á ráðin um víg hans að sögn Landnámu. Ingólfur hefndi fóstbróður síns úti í Vestmannaeyjum og féll Dufþakur þar sem nefndist Dufþaksskor en heitir nú Dufþekja. Í Landnámu er einnig nefndur Dufþakur í Holti, síðar Dufþaksholti í Rangárvallasýslu, og frá viðskiptum hans og þeirra feðga Stórólfs og Orms á Stórólfshvoli segir í Orms þætti Stórólfssonar.

  • Dufgus
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.

    Dufgus Þorleifsson er nefndur í Sturlungu. Nafnið er komið úr fornírsku „Dubgus“, af „dub“ sem merkir „dökkur“ og „gus“ sem merkir „höfuð“, og er samsvarandi íslenska nafninu Svarthöfði.

  • Drengur
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·6 bera nafnið

    Drengur, - piltur.

  • Draupnir
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·21 ber nafnið

    Nafn þetta er skylt sögninni að drjúpa. Það var einnig nafn á hring Óðins, sem var æðstur allra goða í norrænni goðafræði, en af Draupni drupu aðrir hringar.

  • Dósóþeus
    Drengur✓Samþykkt·4 atkv.·1 ber nafnið

    Tökunafn ættað úr grísku „Dositheos“, sett saman úr „dōsis“ sem merkir „gjöf“ og „theos“ sem merkir „guð“, og merkir „guðsgjöf“. Er eiginlega sama nafnið og Theódór.

  • Dóri
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·7 bera nafnið

    Dóri er algengt gælunafn karla sem heita nöfnum sem enda á viðliðnum „-dór“.

  • Dór
    Drengur✓Samþykkt·1 atkv.·62 bera nafnið

    Nafnið er ungt og er stytting á nöfnum sem enda á „-dór“.

  • Dónaldur
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.

    Nafnið er tökunafn í Norðurlandamálum úr ensk-amerísku en er upphaflega af keltneskum rótum, ensk mynd af keltneska nafninu „Domhnall“. Það er sett saman úr fornkeltnesku orðunum „dubno“ sem merkir heimur og „val“ sem merkir ríkja.

  • Dónald
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er tökunafn í Norðurlandamálum úr ensk-amerísku en er upphaflega af keltneskum rótum, ensk mynd af keltneska nafninu „Domhnall“. Það er sett saman úr fornkeltnesku orðunum „dubno“ sem merkir heimur og „val“ sem merkir ríkja.

  • Dómaldur
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.

    Sama/svipað og Dómald

  • Dómaldi
    Drengur✓Samþykkt·3 atkv.

    Sama/svipað og Dómald

  • Dómald
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·3 bera nafnið

    Sá sem ræður dómum.

  • Dofri
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·28 bera nafnið

    Djúpur dalur, - gil.

  • Diðrik
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·28 bera nafnið

    Nafn þetta kemur úr þýsku og þýðir bæði þjóð og sá sem ræður.

  • Demus
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er talið þýsk stytting á „Nikodemus“.

  • Davíð
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·1.275 bera nafnið

    Nafn þetta kemur úr hebresku og biblíunni og merkir hinn elskaði.

  • Darri
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·759 bera nafnið

    Ýmsar kenningar eru til um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það komið frá norska orðinu "darre" sem merkir letingi og aðrir vilja meina að það geti verið tengt nafnorðinu "darr" sem merkir spjót.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →