Xenia
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 6 bera nafnið
Nafnið virðist upphaflega hafa borist sem eiginnafn til Vestur-Evrópu frá Rússlandi. Rússneska myndin er „Xenija“ og er hliðarmynd við „Axinja“. Nafnið er myndað af gríska orðinu „xenia“ sem merkir gestrisni, sbr. „xénos“ sem merkir gestrisinn.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
2. nóv 2022
Fjöldi með nafn
4
Fyrsta nafn
2
Annað nafn
6
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.JuliaJulia er hliðarmynd nafnsins Júlía og er myndað eftir karlmannsheitinu „Júlíus“ með viðskeytinu „-a“. Nafnið er vel þekkt á öllum Norðurlöndum, í enskumælandi og þýskumælandi löndum og víðar.DaniaDania er ítölsk stytting á nafninu Daniela, kvenkynsmynd af Daníel. Það er af hebreskum rótum og merkir „Guð er dómari minn“.SofiaSama/svipað og Soffía.NadiaNafnið er upphaflega rússneskt, „Nadya“, en það er gælumynd nafnsins „Nadezhda“ sem merkir „von“.LuciaNafnið er rómverskt að uppruna og talið leitt af karlmannsnafninu „Lūcius“, sem á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „lūx“ er merkir ljós. „Lucy“ er ensk mynd nafnsins. Heilög Lúsía frá Sýrakúsu, sem dó píslarvættisdauða árið 304, var mjög vinsæll dýrlingur á miðöldum og var m.a. ort um hana í „Heilagra meyja drápu“ á 14. öld. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í ensku- og þýskumælandi löndum, Ítalíu, Spáni og víðar, og „Lúcíumessa“ er haldin 13. desember.LydiaSama/svipað og Lýdía.SophiaNafnið er grískt að uppruna, leitt af nafnorðinu „sophia“ sem merkir „viska“. Talið er að eiginnafnið hafi orðið til fyrir misskilning þar sem „hagia sophia“ var túlkað sem „heilög Soffía“ í stað „heilög viska“, en heilög Soffía dó píslarvættisdauða um árið 120. Hún var móðir Fídesar, Spesar og Karitasar. Nafnmyndin „Sophia“ varð vinsæl á Bretlandseyjum á 17. og 18. öld, meðal annars vegna persónunnar Sophiu Weston í skáldsögunni „Tom Jones“ eftir Henry Fielding frá 1749. Nafnið var einnig algengt í konungaættum Evrópu, sem ýtti undir útbreiðslu þess.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →