Konstantína
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði
Nafnið er líklegast myndað af karlmannsnafninu „Konstantínus“ með viðskeytinu „-a“, sbr. einnig „Konstantía“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KonkordíaNafnið hefur hugsanlega borist til Íslands úr þýsku, þar sem það er notað í ritmyndunum „Concordia“ og „Konkordia“, en þangað hefur það líklega borist frá Ítalíu. Nafnið er leitt af latneska nafnorðinu „concordia“ sem merkir friður, samlyndi.KristólínaNafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og nafninu "Ólína".KarólínaNafn þetta er komið af latneska nafninu "Carolus" sem samsvarar karlmannsnafninu "Karl" í íslensku með viðskeytinu "ina" fyrir aftan.KlementínaNafnið gæti hafa borist hingað úr dönsku eða þýsku, „Clementine“, og er einnig þekkt í ensku frá 19. öld. Það er leitt af karlmannsheitinu „Clement“, sem er dregið af latneska nafninu „Clēmēns“ (í eignarfalli „Clēmēntis“), sama uppruna og nafnið „Klemens“. Latneska lýsingarorðið „clēmēns“ merkir „mildur“.KatarínaSama/svipað og Katrín.KarolínaSama/svipað og Karólína.KolfinnaNafn þetta er sett saman af forliðnum "Kol" sem merkir dökkt yfirbragð og viðliðnum "finna" sem merkir kona.KaterínaNafnið er upphaflega grískt en uppruni er óviss. Þekktasti nafnberi fyrr á öldum var heilög Katrín sem dó píslarvættisdauða í Alexandríu árið 307. Um hana spunnust miklar sögur og nafn hennar, sem upphaflega var ritað „Aikaterine“, var tekið upp víða í Evrópu. Snemma var farið að tengja nafnið við gríska orðið „katharós“ „hreinn“ og þaðan kemur rithátturinn með „-th-“ sem tíðkast víða erlendis. Til er Katrínar saga sem segir frá heilagri Katrínu af Alexandríu og út af sögunni var Katrínar drápa ort um 1400.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →