Kim
Drengjanafn Samþykkt· 1 atkvæði· 66 bera nafnið
Nafnið er vel þekkt frá þessari öld á Norðurlöndum, á Englandi og í Þýskalandi. Upphaflega var það eingöngu karlmannsnafn en er nú einnig erlendis notað sem kvenmannsnafn og er þá enskt stuttnefni af „Kimberley“. Söguhetja Rudyards Kiplings í skáldsögunni „Kim“ bar nafnið sem styttingu á „Kimball“ og er það talið hafa ýtt undir notkun styttingarinnar. Nafnið er einnig notað sem stytting á „Jóakim“.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
36
Fyrsta nafn
35
Annað nafn
71
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KarlNafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".JimEnsk og írsk stuttnefni af nafninu „James“.KajNafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni þess er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir telja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.JóakimNafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Jehoiachin" sem merkir Drottinn upphefji.HakimNafnið er arabískt og merkir „hinn vitri“.KiljanNafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.JónNafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.