Hjalmar
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 4 bera nafnið
Nafnið er sett saman af forliðnum „Hjálm-“ og viðskeytinu „-ar“. Það kemur fyrir í Örvar-Odds sögu og Hervarar sögu og Heiðreks konungs, auk fornbréfa frá 15. og 16. öld. Margar rímur voru ortar um „Hjálmar hugumstóra“ og „Hjálmar og Ingibjörgu“ og hafa þær sennilega haft áhrif á útbreiðslu nafnsins. Í Danmörku þekkist nafnið „Hjalmar“ frá fornu fari en virðist ekki hafa verið notað í Noregi og Svíþjóð fyrr en á 18. öld. Það hefur einnig verið tekið upp á Englandi og í Þýskalandi.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
2
Annað nafn
3
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
HjálmarNafn þetta er myndað af forliðnum "Hjálm" sem merkir hjálmur, - höfuðhlíf og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.HjaltiTvær kenningar eru um uppruna og merkingu. Annars vegar er talið að nafn þetta sé dregið af nafnorðinu "hjalt" sem merkir handhlíf á sverði og hinsvegar að það merki íbúa Hjaltlands.HjarnarUppruni nafnsins er óviss en ef til vill er það myndað af nafnorðinu „hjarn“ sem merkir harðfrosið snjólag, með viðskeytinu „-ar“.HjörvarNafn þetta er leitt af forliðnum "Hjör" sem merkir sverð og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.HilmarNafn þetta er upphaflega komið úr þýsku þar sem það var stytting á nafninu "Hildemar" sem sett var saman af forliðnum "hildi" sem merkir orrusta og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.HeiðmarNafn þetta er myndað af forliðnum "Heið" sem merkir ýmist sæmd, - tign, - bjartur, - skær og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.HjörturNafn þetta er fengið af dýrsheitinu hjörtur.HólmarNafn þetta er myndað af forliðnum "Hólm" sem merkir hólmi, - smáey, - einvígisstaður og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.