Heinrekur
Íslensk mynd nafnanna „Hinrik“ og „Henrik“, sem eru erlend að uppruna. „Heinrekur“ kemur meðal annars fyrir í riddarasögum; „Heinrekur Aðalráðsson“ var konungur á Englandi samkvæmt Mágus sögu jarls og sonur hertogans af Braband hét „Heinrekur“ samkvæmt Partalópa sögu. Það kemur einnig fyrir sem föðurnafn í Sturlungu og biskupa sögum. Nafnið hefur verið notað í ýmsum myndum á Norðurlöndum, á Englandi og í Þýskalandi um langan aldur og barst til Íslands frá Norðurlöndum eða beint úr lágþýsku. Það er upphaflega lágþýsk hliðarmynd af „Heimerich“ sem leitt er af nafnorðinu „heimingi“, sem merkir heimkynni. Síðari liður er fornháþýska lýsingarorðið „rihhi“, sem merkir voldugur, auðugur, skylt orðinu „ríkur“. „Hinrik“ er oft aðalpersóna í rímum, t.d. eru til rímur af „Hinriki hugprúða“ frá 1722 og aðrar af „Hinriki hertoga“ sem ortar voru 1786.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: