Grani

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 2 bera nafnið

Nafnið kemur fyrir í Landnámu, fornsögum og fornbréfi frá 13. öld. Það er sama orð og „grani“ 'hestsheiti; hestsnafn', leitt af „grön“ 'yfirvararskegg; (efri) vör; (í fleirtölu) varir, skeggstæði'. Nafnið merkir eiginlega 'með hárbrúsk á snoppu, skeggjaður maður', sbr. Óðinsheiti eins og „Hrosshársgrani“, „Rauðgrani“ og „Síðgrani“ og fornsagnanöfn eins og „Grankell“ og „Granmar“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

0

Fyrsta nafn

2

Annað nafn

2

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

GrankellNafnið kemur fyrir í Heimskringlu. Það er myndað af forliðnum „Grani“ og viðliðnum „-kell“.GuðniNafn þetta kemur af fornenska nafninu "Godwine" sem er samsett af orðunum "God" sem merkir guð og "wine" sem merkir vinur.GrétarNafn þetta er dregið af kvennafninu Gréta sem er stytting á nafninu Margrét og merkir perla.GísliNafn þetta merkir herfangi, - gísl. Í grein eftir Sigurð Nordal eru vangaveltur um að ekki sé skýrt eftir herfangi. Frekar að við þær aðstæður þegar stríðandi aðilar þurftu að semja um frið, þá voru fengnir gíslar sem gengu yfir á meðan á viðræðum stóð. Ef ekki náði saman voru gíslarnir drepnir. Þótti heiður af því að vera gísl.GunniNafnið kemur fyrir í fornbréfum frá 15. öld. Samkvæmt dönskum heimildum er „Gunni“ þekkt frá því á víkingaöld sem stytting á nöfnum sem hefjast á „Gun-“. Á Íslandi er „Gunni“ upphaflega stytting á nafninu „Gunnar“.GrímurNafn þetta er myndað af forliðnum "Grím" sem merkir gríma, - dulargervi, - hjálmur, - nótt og viðskeytinu "ur" sem merkir maður.GylfiUppruni þessa nafns er óviss. Talið er að það gæti tengst orðinu "gylfin" sem merkir illvættur eða að það tengist sögninni "að gjálfra" og nafnorðinu "glufur" í merkingunni glundur, - glundroði.GautiNafnið er hliðarmynd af „Gautur“ og kemur fyrir í fornsögum og fornbréfum. Það hefur verið notað í ýmsum myndum á Norðurlöndum frá miðöldum, meðal annars sem norska Gaute, sænska Göte og forndanska Gøtar.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.