Finni

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1 ber nafnið

Nafnið „Finnur“ kemur fyrir í Landnámu, fornsögum og fornbréfum og var þar ritað „Fiðr“ og „Finnr“. Nafnmyndin „Finni“ var samþykkt 2020. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum, Englandi og í Þýskalandi; á Englandi og í Þýskalandi hefur því slegið saman við írsk-gelíska nafnmynd í merkingunni „hvítur“. Karlmannsnafnið „Finnur“ er sama orð og „finnur“, þ.e. maður af þjóðflokki sem byggði nyrstu héruð Noregs og Svíþjóðar, en veik mynd orðsins, „finni“, er notuð um íbúa Finnlands. Orðið kemur fyrir í fornum grískum og latneskum heimildum sem „Phínnoi“ hjá Ptolemaeusi, „Fenni“ hjá Tacitusi og „Finnaithæ“ hjá Jórdanes, en uppruni þess er óviss. Viðliðurinn „-finnur“ er algengur í karlmannsnöfnum, t.d. „Friðfinnur“, „Geirfinnur“ og „Þorfinnur“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn