Millinafn

Bót

Bót hét ambátt Ketilbjarnar gamla í Landnámu. Nafnið er líklegast leitt af orðinu „bót“ sem merkir bati, betrun, lagfæring. Nafnliðurinn er sennilega vesturgermanskur að uppruna: í fornensku var til nafnorðið „bōt“ sem merkir betrun, hjálp, uppbót, í miðensku sögnin „bōtnen“ sem merkir bæta, og í fornháþýsku nafnorðið „buoza“ sem merkir betrun, iðrun. „Bót-“ er forliður í nokkrum gömlum nöfnum, t.d. „Bótey“, „Bóthildur“ og „Bótólfur“. Hann hefur einnig verið tengdur fornháþýska orðinu „boto“ sem merkir sendiboði eða stjórnandi, en það er ekki eins sennilegt.

Ábending eða leiðrétting?

Fjöldi sem ber nafnið, á ári

Enginn ber nafnið á Íslandi.

Mannanafnanefnd hafnaði nafninu 7. jan 2010. Því ber enginn það hér.

0
sem 1. nafn
0
sem 2. nafn
–
ekki raðað

Hve margir heita öðrum nöfnum?

Settu hjarta á nafnið og þú sérð um leið ef úrskurður breytist. til að fá póst.

Hafnað

·

úrskurður 7. jan 2010

Lesa úrskurðinn →

Samþykkt nöfn sem líkjast

Sjá öll nöfn sem byrja á B →

Heimildir

  1. 1 Merking: Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Behind the Name og Nordic Names
  2. 2 Fjöldi og sæti: Þjóðskrá Íslands
  3. 3 Staða: Mannanafnaskrá Þjóðskrár