Löng íslensk nöfn
Löng nöfn hafa oft hátíðlegan blæ og karakter. Þau geta verið falleg og áhrifamikil, sérstaklega með stuttu eftirnafni.
Samtals eru 1460 nöfn með 8 stöfum eða fleiri í gagnagrunninum.
Lengsta nafnið er Snæfellsjökuls með 14 stöfum.
Löng stúlkunöfn
- SigríðurStúlkaSamþykkt3 atkv.3.072 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "ríður" sem merkir falleg, - umhygglusöm.
- IngibjörgStúlkaSamþykkt3 atkv.1.982 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.
- ElísabetStúlkaSamþykkt4 atkv.1.276 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.
- RagnheiðurStúlkaSamþykkt3 atkv.1.233 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.
- GuðbjörgStúlkaSamþykkt2 atkv.1.132 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.
- SteinunnStúlkaSamþykkt2 atkv.1.080 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.
- BerglindStúlkaSamþykkt2 atkv.1.045 sem fyrsta nafn
Fremur ungt nafn hér á landi sem talið er dregið af nafni flugkappans Charles Lindbergh, sem fyrstum tókst að fljúga yfir Atlantshafið frá New York til Parísar árið 1927. Nafnið er sett saman af forliðnum „Berg“ og viðliðnum „lind“ sem merkir uppspretta.
- HrafnhildurStúlkaSamþykkt3 atkv.1.013 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af dýrsheitinu hrafn og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
- HalldóraStúlkaSamþykkt3 atkv.794 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Hall" sem merkir steinn og nafninu "Dóra".
- ValgerðurStúlkaSamþykkt3 atkv.677 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.
- SigurbjörgStúlkaSamþykkt3 atkv.625 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.
- AlexandraStúlkaSamþykkt4 atkv.580 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur frá karlmannsnafninu Alexander sem merkir verndari.
- RagnhildurStúlkaSamþykkt3 atkv.552 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
Löng drengjanöfn
- SigurðurDrengurSamþykkt3 atkv.3.934 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af fornháþýska nafninu "Sigwart" sem er myndað af forliðnum "Sig" sem merkir sigur og viðliðnum "wart" sem merkir vörður, verndari.
- GuðmundurDrengurSamþykkt3 atkv.3.699 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.
- KristjánDrengurSamþykkt2 atkv.2.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Christiánus" sem merkir kristinn maður.
- KristinnDrengurSamþykkt2 atkv.1.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af nafnorðinu "kristinn" sem merkir sá sem trúir á Jesú Krist.
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- ÞorsteinnDrengurSamþykkt2 atkv.1.121 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "steinn" sem merkir harður, - steinn.
- BenediktDrengurSamþykkt3 atkv.866 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tekið úr latinu, samsvarar latneska orðinu "benedictus" sem þýðir blessaður.
- KristóferDrengurSamþykkt3 atkv.859 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska nafninu "Khristóphoros" sem merkir sá sem ber krist.
- JóhannesDrengurSamþykkt3 atkv.833 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af nafninu "Jochanan" sem merkir Drottinn er náðugur.
- HaraldurDrengurSamþykkt3 atkv.801 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Har" sem merkir her og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á.
- SigurjónDrengurSamþykkt3 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.
- BjörgvinDrengurSamþykkt2 atkv.664 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Björg" sem merkir hjálp, - að frelsa og viðliðnum "vin" sem merkir vinur, - félagi. Björgvin er vinur í raun.
- MatthíasDrengurSamþykkt3 atkv.612 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Mattathiha" sem merkir gjöf guðs.
- HafsteinnDrengurSamþykkt2 atkv.519 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "steinn" sem merkir steinn, - harður.
- IngólfurDrengurSamþykkt3 atkv.507 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.
Af hverju velja langt nafn?
Löng nöfn hljóma oft formleg og virðuleg, og mörg þeirra eiga sér falleg stuttnefni í daglegu tali (Kristín verður Kidda). Þau fara líka vel með stuttu eftirnafni.
Leitar þú að styttri nafni?
Skoðaðu stutt íslensk nöfn með 2–4 stöfum.
Algengar spurningar um löng nöfn
Hvað telst langt nafn?
Á Veldu nafn miðum við löng nöfn við 8 stafi eða fleiri. Það eru yfir 1460 slík nöfn skráð í gagnagrunninum.
Hvert er lengsta íslenska nafnið?
Lengsta skráða nafnið er Snæfellsjökuls með 14 stöfum.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →